Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Veðrinu misskipt í dag og á morgun

Read Full Article →

Dýpkandi lægðardrag á Grænlandshafi dregur hægt vaxandi suðaustanátt yfir landið. Því má búast við strekkingi við suður- og vesturströndina seinnipartinn. Smá væta þar í fyrstu og svo bætir í úrkomuna þegar líður á daginn. Á Norður- og Austurlandi verður skýjað með köflum og ef til vill sólarglennur. Það verður fremur milt veður að deginum með hita að 13 stigum norðan heiða. Á morgun spáir stífri suðaustanátt með rigningu en áfram verður þurrt á Norður- og Austurlandi. Á sunnudag má gera ráð fyrir hægari austlægri átt og lítilli úrkomu. Víða næturfrost. Útlit er fyrir rólegt og úrkomulítið veður fram eftir næstu viku.

Share this article