Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gul hríðarviðvörun á Suðurlandi og við Faxaflóa

Read Full Article →

Í dag má búast við éljum sunnan og vestantil á landinu. Sunnanáttin nær víðast hvar ekki 10 metrum á sekúndu og því litlar líkur á skafrenningi. Skyggni gæti þó verið slæmt á meðan élin ganga yfir. Norðaustanlands verður bjart veður. Hiti kringum frostmark yfir daginn, en frost 0 til 5 stig á Norðaustur- og Austurlandi. Í kvöld nálgast alldjúp lægð úr suðvestri og það hvessir af suðaustri. Í nótt er gert ráð fyrir hríð um tíma sunnan- og vestanlands og því hafa gular viðvaranir verið gefnar út fyrir Suðurland og Faxaflóa. Spáð er suðaustan 18-23 metrum á sekúndu og snjókomu eða slyddu. Skyggni verður slæmt og akstursskilyrði léleg. Á morgun verður lægðin fyrir vestan land. Þá er búist við sunnan hvassviðri eða stormi og úrkomu um mestallt land, ýmist í formi slyddu, rigningar eða élja. Á laugardag verður vindurinn suðvestlægari með éljum. Líklega lægir um kvöldið.

Share this article