Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Úrkoma í flestum landshlutum síðdegis

Read Full Article →

Í dag verður vaxandi austan- og suðaustanátt, 10 til 18 metrar á sekúndu síðdegis. Búast má við rigningu eða slyddu með köflum en fram á kvöld verður lengst af þurrt á Norðausturlandi. Það snýst svo í suðlæga átt seinnipartinn. Þá má gera ráð fyrir 8 til 13 metrum á sekúndu með skúrum og slydduéljum, fyrst suðvestanlands. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig yfir daginn. Suðvestan 10 til 18 metrar á sekúndu og skúrir eða él á morgun en lægir síðdegis. Styttir upp norðan heiða en rigning eða snjókoma með köflum á sunnan- og austanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig. Vaxandi norðaustanátt með snjókomu á Vestfjörðum annað kvöld. Útlit er fyrir norðanhríð norðvestan til á landinu, miðvikudag til föstudags.

Share this article