Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóar norðantil og blæs hressilega suðaustantil

Read Full Article →

Mjög hvasst verður suðaustanlands fram yfir hádegi í dag. Fólk á norðanverðu landinu má eiga von á því að þar snjói. Annars staðar á landinu verður úrkomulítið, þó dálítil él á Suðvesturlandi. Gular viðvaranir gærdagsins hafa hver af annarri fallið úr gildi, sú síðast klukkan sjö á Ströndum og Norðurlandi vestra. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu, en fimmtán til tuttugu suðaustanlands fram yfir hádegi. Snjókoma um norðanvert landið, dálítil él á Suðvesturlandi, en annars úrkomulítið. Lægir smám saman suðvestanlands í dag. Gengur í vestan tíu til átján norðan- og austanlands í kvöld með éljum, en hægari og stöku él suðvestanlands. Lægir smám saman á morgun og dregur úr úrkomu fyrir norðan, en víða bjart sunnan heiða. Vaxandi austanátt vestantil seinnipartinn og annað kvöld með snjókomu eða slyddu syðst og nyrst. Hiti 0 til 5 stig.

Share this article