Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóar norðan- og austantil

  • What: Snow and ice are reported on roads in northern and eastern Iceland.
  • Impact: Travelers in these regions should be aware of hazardous driving conditions.
Read Full Article →

Það snjóar norðan- og austanlands en léttskýjað verður í öðrum landshlutum. Nokkur vindur víðast hvar en þó getur hvesst suðaustanlands. Vegagerðin er byrjuð að kanna aðstæður á vegum. Þungfærst er á Þverárfjalli og í Kelduhverfi og þæfingur í Almenningum og á Hófaskarði. Annars staðar á Norður- og Norðausturlandi er víðast snjóþekja eða hálka. Ekki voru komnar vísbendingar um færð annars staðar þegar þessi frétt var skrifuð utan þess að hálka er áflestum vegum á Vestfjörðum og víða í Borgarfirði. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Norðlæg átt fimm til þrettán, en heldur hvassara suðaustantil. Snjókoma eða él norðan- og austanlands, en annars bjart með köflum. Norðlæg átt þrjú til tíu á morgun, en átta til þrettán á Suðausturlandi. Stöku él á norðan- og austanverðu landinu, en léttskýjað sunnan- og vestantil. Lægir víða undir kvöld. Frost 0 til 6 stig að deginum.

Share this article