- What: The weather forecast for Iceland predicts frost across the country.
- Impact: Roads may be icy, especially in the north and east.
Dagurinn verður frekar napur með frosti um allt land og sjö stigum þar sem kaldast verður. Áfram er útlit fyrir él norðan- og austanlands en léttskýjað verður sunnan heiða. Víða er snjóþekja á vegum á norðan- og austanverðu landinu og hálka eða hálkublettir á vegum um land allt. Norðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu og dálítil él norðan- og austanlands, en léttskýjað sunnan heiða. Norðlæg átt, þrír til átta metrar á sekúndu, á morgun, en átta til þrettán austast á landinu. Stöku él fyrir norðan og austan, en bjart að mestu sunnan- og vestantil. Líkur á dálitlum éljum syðst eftir hádegi. Frost tvö til sjö stig að deginum.