Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áfram éljaveður norðan og austan til

Read Full Article →

Veðrið ber meiri blæ vetrar en sumars á norðan- og austanverðu landinu þar sem útlit er fyrir él og hita nálægt frostmarki. Bjartara verður yfir annars staðar á landinu en þar verður þó ekki sérstaklega hlýtt, þrjú til sjö stig. Veðrið verður svipað fram á föstudag þegar vestlæg átt verður ríkjandi. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu og él, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestanlands. Líkur á stöku skúrum syðst á landinu seinnipartinn. Norðlæg átt þrír til átta á morgun, en heldur hvassara á suðaustanverðu landinu. Stöku él á austanverðu landinu og sums staðar einnig norðantil, en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Hiti um frostmark norðan- og austantil en að 7 stigum sunnan- og vestanlands.

Share this article