Hermenn Rússlandshers skjóta flugskeyti í átt að skotmarki í Úkraínu.AP/Russian Defense Ministry Press Service / Uncredited Stjórnvöld í Rússlandi og Úkraínu skiptust á 205 stríðsföngum hvor í morgun. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið. Vika er síðan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði frá því að umfangsmikil fangaskipti væru í farvatninu. Á sama tíma var tilkynnt um þriggja daga vopnahlé milli ríkjanna. Eftir að vopnahléinu lauk hefur sprengjum Rússlandshers rignt yfir Úkraínu . 27 almennir borgarar hið minnsta hafa verið drepnir í árásum síðustu tveggja daga, að því er segir í frétt Reuters . Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segir Rússa hafa skotið nærri 1.600 drónum að Úkraínu í þessari umfangsmestu árásarhrinu hersins til þessa. Björgunarmenn að störfum við rústir fjölbýlishúss í Kænugarði í gær.AP / Evgeniy Maloletka