Innlent | mbl | 15.5.2026 | 15:00 | Uppfært 16:48 „Viðreisnarbottar“ valda usla Skjáskot Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími Forvitnaðist um greiðslu styrkja Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fór strax að ræða aðildarviðræður » Fleiri tengdar fréttir Yrkjar (e. bots) sem eru hallir undir Viðreisn herja nú á andstæðinga ESB og málsvara fyrirtækisins Vélfags. Yrkjarnir mæra aftur á móti Viðreisn og ráðherra flokksins ákaft, þá sérstaklega Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Fyrir lesendur sem ekki þekkja til yrkja þá er um að ræða nokkurs konar stafræn gervimenni, sem í þessu tilfelli birtast undir fölskum nöfnum og aðgöngum á samfélagsmiðlum sem elta þar uppi umræður og einstaklinga og tala fyrir eða gegn ákveðnum málstað með athugasemdum smíðuðum af gervigreind. Frétt af mbl.is „Þetta er búið að eyðileggja“ Athugasemdir yrkjanna sem nú fara mikinn vítt og breitt á samfélagsmiðlinum Facebook eru um margt kostulegar. Einstaklingar sem skrifaðir eru fyrir athugasemdunum finnast ekki í þjóðskrá en það sem helst kemur upp um að um botta sé að ræða, fyrir utan magn og endurtekningar, er að athugasemdirnar eru oftast nær beinþýddir bandarískir frasar sem koma gjarna spaugilega út á íslensku. Treystir Þorgerði betur en prestinum Sem dæmi um orrahríðina má nefna athugasemdir yrkjanna við færslu á Facebook-síðu Viðreisnar. „Ég trúi Þorgerði meira en prestinum mínum,“ segir yrkinn Þuríður María Sigurðardóttir. Yrkinn Dagný Jónsdóttir segir: „Ég treysti þessu fólki meira enn fjölskyldunni minni.“ Um Þorgerði Katrínu hefur yrkinn Valdimar Jósefsson þetta að segja: „Hún er ekki fullkomin. En hún er nógu góð fyrir mig.“ og yrkinn Vignir Sumarliðason: „Hún er móðir okkar. Faðir okkar. Allt okkar.“ Yrkjarnir lofsama Viðreisn og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Morgunblaðið/Ólafur Árdal „Flokkurinn hennar er eini flokkurinn sem hefur ekki svikið mig,“ segir yrkinn Daníela Björnsdóttir og yrkinn Þorbjörg Jónsdóttir skrifar: „Ég hef aldrei kosið þennan flokk áður. Nú mun ég gera það.“ Tónn yrkjanna er annar gagnvart málsvörum Vélfags og andstæðinga ESB. „Ég hef séð botninn. Og þú ert undir honum,“ skrifar áðurnefndur yrkir Daníela og fyrrnefndur yrkir Þorbjörg skrifar: „Ég var að reyna að skilja rökin þín. En það voru engin.“ Athygli vekur til dæmis að yrkirinn Daníela skilur eftir sig nákvæmlega sömu athugasemd og yrkinn Þorbjörg á öðrum stað. Vita hverjum skal hrósa og hverja skal níða Ógrynni af sambærilegum athugasemdum eru runnin undan rifjum yrkjanna og hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum undir yfirskriftinni „Vélfag og Viðreisnarsinnuð „gervimenni““. Hann segir Vélfag hafa verið glæsilegt hátæknifyrirtæki sem skapaði tugi vel launaðra starfa á Akureyri og Ólafsfirði. Frétt af mbl.is Vélfag segir öllu starfsfólki upp „Stjórnvöld keyrðu fyrirtækið í þrot vegna ósannaðra kenninga um eignarhaldið,“ skrifar Sigmundur og heldur áfram: „Fjöldi fólks missti vinnuna og ekkert varð af því að ný tækni fyrirtækisins færi á heimsmarkað, auk þess sem ekki var hægt að afgreiða pantanir sem lágu fyrir.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins undrar sig á yrkjunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sigmundur segir að svo virðist sem forsvarsmenn fyrirtækisins og aðrir sem hafi leyft sér að verja fyrirtækið hafi fengið yfir sig holskeflu af „netbottum“. Margir áttu bottarnir það sameiginlegt að hafa áður hrósað ráðherrum Viðreisnar og færslum flokksins í hástert. Sigmundur spyr hvort eðlilegt sé að starfsmenn íslensks fyrirtækis séu látnir þola þetta og hvort þetta sé það sem koma skuli í aðdraganda ESB-kosninga. Yrkjarnir ekki á vegum flokksins Samkvæmt heimildum mbl.is stendur flokkur Viðreisnar ekki að yrkjunum og innanbúðarmenn þar velta því fyrir sér hvort einhver sé með þessu að reyna að koma höggi á flokkinn frekar en að hampa honum. Ekki sé þó hægt að útiloka að einhver ákafur stuðningsmaður standi á bak við þetta án vitundar flokksins, en þar innanhúss finnst mönnum málið í það minnsta allt hið bagalegasta. Ekki er heldur loku fyrir það skotið, í ljósi alþjóðlegra tenginga yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB og Vélfagsmálsins, að hér séu erlend öfl að verki. Frétt af mbl.is Skoða möguleg áhrif erlendra aðila á kosingarnar Tengdar fréttir Ísland og ESB Forvirkt samstarf við Evrópusinnaða stjórn Naumur eyðslutími Forvitnaðist um greiðslu styrkja Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fór strax að ræða aðildarviðræður » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 14:11 Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Kemur heim úr atvinnumennsku Í erfðadeilum korter í kreppu „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar X26: Baráttusætin í Reykjavík Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi Mest lesið Í gær Í vikunni Kannast ekki við eigið kosningaloforð Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Fagnar fjörutíu árunum með stæl Beint: X26 – Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 14:11 Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Kemur heim úr atvinnumennsku Í erfðadeilum korter í kreppu „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Greiða milljarða eftir raforku- og gasmælaskandal Ógildir íbúakosningu vegna verulegs ágalla Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Mest lesið Í gær Í vikunni Kannast ekki við eigið kosningaloforð Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Fagnar fjörutíu árunum með stæl Beint: X26 – Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum