Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland vann öruggan sigur gegn Egyptum

Read Full Article →

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann Egyptaland 27-30 í seinni æfingaleik liðanna. Ísland vann áður 30-31 sigur í fyrsta leiknum. Þar með er góðri Egyptalandsför strákanna okkar lokið. Ísak Steinsson lék vel í markinu og var með 10 varin skot og markvörslu upp á 50%. Jón Þórarinn Þorsteinsson lék einnig í markinu. Þorsteinn Leó Gunnarsson, Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson voru markahæstir með fjögur mörk. Þorsteinn Leó var valinn maður leiksins en hann bætti við tveimur stoðsendingum. Aldrei í hættu Leikurinn fór hægt af stað og leiddi Ísland 1-2 eftir fimm mínútna leik. Þorsteinn Leó var í nokkru brasi varnarlega í upphafi og fékk tvisvar tveggja mínútna brottvísun á fyrstu tíu mínútunum. Ísak Steinsson fékk tækifæri í markinu og nýtti það gífurlega. Hann var með sex varin skot strax eftir tólf mínútur. Jafnt var, 5-5, eftir 15 mínútna leik. Ísland náði næst þriggja marka forskoti, 6-9, eftir 22 mínútna leik. Strákarnir náðu mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik, 8-12, eftir 26. Ísland fór með tveggja marka forskot inn í leikhlé, 11-13. Munurinn varð fimm mörk Ísland var áfram skrefi á undan í seinni hálfleik. Strákarnir náðu fimm marka forskoti, 16-21, eftir 41 mínútna leik. Munurinn hélst áfram í fjórum eða fimm mörkum og strákarnir áttu auðvelt með að finna glufur á egypsku vörninni. Þeir leiddu 19-24 eftir 49 mínútna leik. Ísland náði sex marka forskoti, 26-20, skömmu síðar. Að lokum vann Ísland nokkuð öruggan 27-30 sigur.

Share this article