Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Báðir leikirnir gegn Egyptum sýndir á RÚV

Read Full Article →

Eftir langan aðdraganda hefur það loks fengist staðfest að RÚV kemur til með að sýna í beinni útsendingu frá leikjum Íslands í Kaíró, þetta varð endanlega klárt í morgun. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari liðsins, valdi hópinn fyrir verkefni fyrir um tveimur vikum síðan og voru einhverjir af þeim leikmönnum að spila í fyrradag og koma því jafnóðum til egypsku höfuðborgarinnar. Hópurinn er skipaður eftirfarandi leikmönnum: Markverðir : Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2). Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0). Ísak Steinsson, Drammen HK (3/0). Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (118/123). Bjarki Már Elísson, One Veszprém (137/445). Einar Bragi Aðalsteinsson, IFK Kristianstad (2/0). Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (36/8). Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24). Haukur Þrastarson, Rhein Neckar Löwen (58/80). Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0). Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (37/72). Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (43/151). Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (69/215). Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (3/2). Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (88/233). Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (58/52). Tryggvi Þórisson, Elverum Håndball (0/0). Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (27/41). 13. maí - RÚV Kl. 12:50 – 14:35 – Egyptaland – Ísland 15. maí - RÚV 15:50 – 17:35 - Egyptaland - Ísland Einar Örn Jónsson lýsir herlegheitunum báða dagana.

Share this article