Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Landsleikur gegn Egyptum og bikarkeppni karla

Read Full Article →

Í dag eru þrjár íþróttaútsendingar á rásum RÚV. Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í fyrri æfingaleik sínum af tveimur. Liðin mætast í Egyptalandi í þetta sinn en Egyptar sækja Íslendinga heim í upphafi næsta árs í undirbúningi fyrir HM 2027. Leikur landsliðsins hefst klukkan 13:00 og er sýndur á RÚV. Tveir leikir í bikarkeppni Bikarkeppni karla í fótbolta heldur áfram en 16-liða úrslitin hefjast í dag. Tvær viðureignir verða í beinni útsendingu. Þróttur Reykjavík tekur á móti Breiðablik í fyrri leik dagsins. Þróttur er í næstefstu deild en Breiðablik í Bestu deild. Seinni viðureignin er Bestu deildar viðureign Stjörnunnar og KR en liðin mættust nýverið í deild og þar unnu KR-ingar 2-3 útisigur. Þróttur Reykjavík - Breiðablik. 17:30. RÚV 2. Stjarnan - KR. 20:00. RÚV 2. Bikarinn heldur svo áfram á morgun og lýkur með bikarkvöldi annað kvöld. Ísland mætir Egyptum í seinni leiknum 15. maí.

Share this article