Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snorri um breytingarnar miklu: „Ef einhvern tímann þá er það núna“

Read Full Article →

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í tveimur æfingaleikjum um miðjan maí. Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari gerir miklar breytingar á hópnum og eru þær alls sex talsins. Snorri fór yfir víðan völl í viðtalinu. Hvers vegna er Ísland að mæta Egyptum? Hversu nálægt eru þessir sex næsta lokahóp? Hversu mikið veltir Snorri sér upp úr HM 2031 á heimavelli? Hvers vegna Egyptar? Egyptar eru Afríkumeistarar og afar sterkt lið. Auk æfingaleikjanna tveggja í þetta sinn munu þeir heimsækja Ísland og leika tvo leiki í aðdraganda HM 2027. En af hverju þeir? „Ég bara man það ekki alveg. Þetta barst í tal fljótlega eftir EM að þá vantaði leiki. Þegar þeir voru svo tilbúnir að koma hingað í janúar þáðum við það bara. Þetta er gott verkefni og frábært lið með marga heimsklassa leikmenn. Þannig þetta er mjög verðugt.“ Hér má sjá viðtalið við Snorra í heild sinni. Snorri Steinn Guðjónsson ræddi þær miklu breytingar sem hann gerði á landsliðshópnum fyrir æfingaleiki gegn Egyptum. Snorri ræddi stöðu Björgvins Páls Gústavssonar, hvers vegna Egyptar urðu fyrir valinu og hvort að hann hugsi um HM á heimavelli. Ef einhvern tímann þá núna Snorri segir að glugginn í þetta sinn sé fullkominn tími til að prufa sig áfram með nýja leikmenn. Inn í þetta sinn: Jón Bjarni Ólafsson, FH (nýliði) Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (nýliði) Tryggvi Þórisson, Elverum (nýliði) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg Einar Bragi Aðalsteinsson, Kristianstad Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg Svona er hópurinn Hópurinn í heild sinni Markmenn: Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2) Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (118/123) Bjarki Már Elísson, Veszprem (137/445) Einar Bragi Aðalsteinsson, Kristianstad (2/0) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (36/8) Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24) Haukur Þrastarsson, Rhein Neckar Löwen (58/80) Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF Håndbold (37/72) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (43/151) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten (69/215) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (3/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (88/233) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (58/52) Tryggvi Þórisson, Elverum (0/0) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (27/41) Hverjir duttu út? Magdeburgarmennirnir Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson eru ekki með. Þá detta Björgvin Páll Gústavsson, Viggó Kristjánsson og Janus Daði Smárason út. Ýmir Örn Gíslason dettur líka út frá síðasta hóp sem mætti Svíum. „Það eru töluverðar breytingar. Mér líst ágætlega á það. Það vantar klárlega mikið af lykilmönnum. Það er ekkert endilega breyting á því í kortunum en ég var búinn að hugsa þetta fyrir einhverju síðan að prufa mig eitthvað áfram. Auðvitað hefur þetta aðeins undið upp á sig. Það eru þarna strákar eins og Janus, Ýmir og Viggó sem eru töluvert laskaðir. Þeir eru meiddir og geta ekki tekið þátt. Svo eru aðrir sem ég ákvað að gætu fengið frí í þessu verkefni. Þeir hafa spilað mikið og eru laskaðir. Það er mikið fram undan hjá þeim.“ „Ef ég horfi aðeins fram í tímann þá er þetta líklegast eini glugginn í náinni framtíð þar sem ég get gert svona mikið af breytingum. Næst eru bara mótsleikir og stórmót. Þar vel ég mitt sterkasta lið og er ekki að prófa mig áfram með hluti. Ef einhvern tímann þá þyrfti það að vera núna.“ Risatæki fyrir alla - ekki alltaf sami kaffibollinn Snorri telur að allir þeir sex sem koma inn í þetta sinn geti fært sig nær því að vera í hóp á lokamóti. „Þetta er risatækifæri fyrir alla sem eru í þessum hóp,“ segir Snorri og segir ákveðinn kjarna hafa myndast í liðinu. „En við þurfum samkeppni og þurfum aðhald. Að þetta sé ekki bara alltaf sami kaffibollinn. Þarna fáum við frábært tækifæri til að skoða menn, í alvöru leikjum á móti alvöru andstæðingum.“ „Það segir sig sjálft að ef þú kemur með góða frammistöðu þarna þá ertu helvíti nálægt þessu.“ Jón Þórarinn inn - veit hvar hann hefur Björgvin Pál Jón Þórarinn Þorsteinsson úr FH kemur inn í þriggja manna markvarðarteymið þar sem fyrir eru Viktor Gísli Hallgrímsson og Ísak Steinsson. Björgvin Páll Gústavsson er ekki valinn í þetta sinn en Snorri segist vel vita hvar hann hefur Björgvin. „Ég veit nokkurn veginn hvar ég hef Björgvin Pál og fyrir hvað hann stendur. Mér fannst ekkert endilega nauðsynlegt að skoða hann í þessum leikjum. Það vita það allir að það kemur að því að Björgvin Páll verður ekki landsliðsmaður í handbolta.“ Snorri segir að frammistaða Jóns Þórarins í vetur skili honum sætinu og að hann eigi það vel skilið. „Við erum að skoða þá hluti og höfum verið að gera það markvisst. Bæði höfum við prófað menn á æfingum og verið aðeins að jöggla með þá. Mér finnst Jón Þórarinn hafa verið góður með FH í allan vetur. Þeir hafa staðið sig vel og eru komnir í úrslitaeinvígið. Þannig mér fannst hann bara eiga það skilið.“ Þrenna sem hann þekkir Kristján Örn Kristjánsson, Elvar Ásgeirsson og Einar Bragi Aðalsteinsson eru allir leikmenn sem hafa verið viðloðandi landsliðið. Donni var í lokahópnum fyrir EM en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Þá hafa Elvar og Einar Bragi átt góð tímabil með sínum liðum í Danmörku og Svíþjóð. Snorri segir að þeir fái töluvert margar mínútur í þetta sinn. Óskastaðan væri að þeir myndu valda þjálfarateyminu hausverk. „Donni var í síðasta lokahóp og Elvar var kallaður inn, til að mynda. Bara það segir okkur að þeir eru mjög, mjög nálægt þessu. En þeir eru vissulega í alvöru samkeppni. Þetta er frábær gluggi og tækifæri fyrir þá til þess að stimpla sig vel inn. Þeir fá þarna alvöru mínútur og líklegast töluvert margar mínútur.“ „Eins væri óskastaða að sem flestir myndu valda okkur í þjálfarateyminu meiri hausverk í framtíðinni.“ HM 2027 fyllir allt Hversu mikið veltir Snorri fyrir sér HM 2027 sem fer fram í janúar? „Það eiginlega bara fyllir allt. Það miðast allt við HM. Allir svona leikir og allur undirbúningur er alltaf með HM bak við eyrað. Þú ert auðvitað að hugsa um þetta þó að það sé langt í þetta. Ég lít á þetta sem glugga til að skoða hluti sem geta nýst okkur á HM. Þegar þú velur svona breyttan hóp að óskastaðan eftir verkefni væri að ég væri kominn með eitthvað í hendurnar sem ég get notað í janúar.“ En hvað með HM 2031? Meira en fólk heldur Ljóst er að Ísland mun verða gestgjafi á HM 2031, það er að segja ef Þjóðarhöllin í Laugardal rís. Snorri skrifaði nýverið undir lengsta samning sem landsliðsþjálfari hefur haft í höndum. Þar var talað um langtímamarkmið. Hversu mikið er Snorri að hugsa um liðið sem hann verður þá með í höndunum? „Já, ég geri það meira en fólk heldur, held ég. En það fyllir ekkert svakalega, ef þú berð það saman við HM 2027. Það er það sem starfið mitt snýst um, að þjálfa íslenska landsliðið í dag. En já, það fyllir alveg smá og ég velti þessu aðeins fyrir mér. „Eins og leikurinn FH – Valur í úrslitaeinvíginu. Ég horfi á hann svona beggja blands. Þú ert að horfa á það sem gerist í dag og svo er ég líka að horfa á framtíðina,“ sagði Snorri að lokum.

Share this article