Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Miklar breytingar fyrir Egyptaleikina

Read Full Article →

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, opinberaði í dag hópinn sem mun mæta Egyptalandi í tveimur æfingaleikjum um miðjan maí. Endanlegur leiktími liggur ekki fyrir sem stendur. Alls gerir Snorri sex breytingarnar á hópnum. Jón Bjarni Ólafsson, Jón Þórarinn Þorsteinsson, Tryggvi Þórisson, Kristján Örn Kristjánsson, Einar Bragi Aðalsteinsson og Elvar Ásgeirsson koma inn í hópinn. Bjarki Már Elísson er einnig í hópnum. Hann var með í síðasta hóp en var þó meiddur og tók ekki þátt. Magdeburgarmennirnir Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson eru ekki með. Þá dettur Björgvin Páll Gústavsson út.. Hópurinn í heild sinni Markmenn Ísak Steinsson Viktor Gísli Hallgrímsson Jón Þórarinn Þorsteinsson Aðrir leikmenn Arnar Freyr Arnarsson Einar Þorsteinn Ólafsson Elliði Snær Viðarsson Haukur Þrastarson Orri Freyr Þorkelsson Óðinn Þór Ríkharðsson Reynir Þór Stefánsson Sigvaldi Björn Guðjónsson Stiven Tobar Valencia Teitur Örn Einarsson Viggó Kristjánsson Ýmir Örn Gíslason Þorsteinn Leó Gunnarsson Jón Bjarni Ólafsson Tryggvi Þórisson Kristján Örn Kristjánsson Einar Bragi Aðalsteinsson Elvar Ásgeirsson Í fyrsta sinn síðan 2018 Í janúar munu Egyptar mæta hingað heim og spila tvo æfingaleiki í aðdraganda HM. Þeir leikir verða spilaðir 7. og 9. janúar en HM hefst svo 13. janúar. Það verða fyrstu leikirnir síðan 2018 sem íslenska liðið spilar hér á heimavelli í aðdraganda stórmóts, að undanskildum tveimur leikjum við Portúgal sem fóru fram í janúar 2020 í undankeppni EM fyrir luktum dyrum. Egyptar verða í sama styrkleikaflokki og Ísland þegar dregið verður í riðla fyrir HM og liðin geta því ekki mæst í riðlakeppni mótsins, það útilokar ekki að liðin mætist í milliriðlum. Í nóvember hefst undankeppni EM 2028. Sú undankeppni er riðlakeppni og það kemur í ljós 26. mars, þegar dregið verður, hvaða andstæðingar bíða þar.

Share this article