Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Enginn Ómar gegn Svíum — Æfingaleikir við Egypta í maí og janúar

Read Full Article →

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, opinberaði í dag hópinn sem mun mæta Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum hér heima í næstu viku. Nokkrar breytingar eru á hópnum. Fyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon verður ekki með liðinu en hann á von á barni á næstunni. Miðað við upphaflega hópinn sem var valinn fyrir EM í janúar detta þeir Bjarki Már Elísson, Andri Már Rúnarsson og Kristján Örn Kristjánsson út en Kristján Örn fór ekki á EM vegna meiðsla. Elvar Ásgeirsson sem kom inn í hópinn á EM er ekki valinn að þessu sinni. Elvar Örn Jónsson sem meiddist í leik við Ungverja á EM er klár og í hópnum. Þá koma þeir Reynir Þór Stefánsson, Sigvaldi Björn Guðjónsson og Stiven Tobar Valencia inn. Markvörðurinn Ísak Steinsson er sömuleiðis valinn. Leikirnir fara fram á Hlíðarenda og í Kaplakrika 19. og 21. mars. Báðir leikir verða sömuleiðis í beinni útsendingu á RÚV. Hópurinn í heild sinni Markmenn Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39) Æfingaleikir við Egypta í maí og janúar Meðfram tilkynningunni á landsliðshópnum var tilkynnt um dagskrá landsliðsins fram að næsta stórmóti, HM í Þýskalandi í janúar, en með góðum árangri á EM hefur liðið nú þegar tryggt sér þátttökurétt á mótinu. Í maí, 13. og 15. maí, mun liðið leika æfingaleiki við Egypta í Egyptalandi og í janúar munu Egyptar svo mæta hingað heim og spila tvo æfingaleiki í aðdraganda HM. Þeir leikir verða spilaðir 7. og 9. janúar en HM hefst svo 13. janúar. Það verða fyrstu leikirnir síðan 2018 sem íslenska liðið spilar hér á heimavelli í aðdraganda stórmóts, að undanskildum tveimur leikjum við Portúgal sem fóru fram í janúar 2020 í undankeppni EM fyrir luktum dyrum. Egyptar verða í sama styrkleikaflokki og Ísland þegar dregið verður í riðla fyrir HM og liðin geta því ekki mæst í riðlakeppni mótsins, það útilokar ekki að liðin mætist í milliriðlum. Þetta verða ekki einu leikir liðsins á árinu því í nóvember hefst undankeppni EM 2028. Sú undankeppni er riðlakeppni og það kemur í ljós 26. mars, þegar dregið verður, hvaða andstæðingar bíða þar.

Share this article