Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Númer eitt þá væri ég náttúrulega til í að hafa þjóðarhöll“

Read Full Article →

Leikmannahópur Íslands fyrir tvo leiki gegn Svíum í næstu viku var tilkynntur í dag. Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, valdi sitt sterkasta lið sem í boði var og býst við hörkuleikjum gegn Svíþjóð. „Mér fannst mikilvægt og rétt að velja mitt sterkasta lið og vera svona allavega hvað mannaval varðar ekki í einhverri tilraunastarfsemi. Ég geri það kannski í seinni glugganum í vor,“ sagði Snorri. Leikirnir fara fram 19. og 21. mars og verða báðir í beinni útsendingu á RÚV. Meðfram tilkynningu á leikmannahópnum í dag var tilkynnt að Ísland muni mæta Egyptum fjórum sinnum á næstu mánuðum. Fyrst tvisvar í maí og svo tvisvar í janúar í aðdraganda heimsmeistaramótsins sem Ísland hefur þegar tryggt sér þátttökurétt á. Fyrst eru það hins vegar leikir við Svía sem eiga harma að hefna frá því á EM í janúar þegar Ísland vann frækinn sigur. Snorri reiknar með að bæði lið verði að prófa einhverja hluti en er spenntur fyrir því að fá svona stóran andstæðing hingað heim. Snorri Steinn Guðjónsson opinberaði í dag leikmannahópinn sem mætir Svíþjóð 19. og 21. mars. Leikirnir fara fram á Hlíðarenda og Kaplakrika þar sem Laugardalshöll var upptekin. Leikirnir fara fram á Hlíðarenda og í Kaplakrika þar sem vörusýningin Verk og vit er á sama tíma í Laugardalshöllinni. Snorri segist ekki mikið hafa velt því fyrir sér hvar leikirnir fara fram. „Númer eitt þá væri ég náttúrulega til í að hafa þjóðarhöll, einhverja stóra og alvöru höll þar sem væri hægt að rúma allt þetta fólk sem ég held að vilji koma og sjá þessa leiki.“ „Auðvitað er Laugardalshöllin okkar höll og ég þekki það náttúrulega bæði sem landsliðsmaður og þjálfari. Það er eitthvað við það að spila þar og ég myndi alltaf velja að spila þar, það er bara okkar heimavöllur en hún var bara upptekin,“ bætir Snorri við. Dagskrá landsliðsins fram að næsta stórmóti liggur nú fyrir en auk æfingaleikjanna við Egypta hefst undankeppni EM í nóvember. „Mér finnst það mjög gott og mjög þægilegt að vera ekki á leið í þetta HM umspil,“ segir Snorri. Planið gefi honum líka fyrirsjáanleika og tækifæri í einhverjum af þessum gluggum til að prófa hluti og þróa sig áfram. Í fyrsta sinn í langan tíma mun íslenska liðið svo spila æfingaleiki á heimavelli í aðdraganda stórmóts í janúar en Snorri segir það verða að koma í ljós hvaða áhrif það hefur að geta verið lengur heima á Íslandi áður en haldið er út á mögulega langt stórmót. „Það er gott fyrir íslenskan handbolta og áhugafólk um íslenskan handbolta og landsliðið að við séum að spila heima rétt áður en við förum á mót. Þekkjandi það líka sjálfur sem leikmaður búandi erlendis þá finnst mönnum gott að komast heim í vini og fjölskyldur og nú fá þeir aðeins lengri tíma í það og vonandi bara nýtist það okkur og gerir mönnum gott.“

Share this article