Ísland og Svíþjóð mætast í tveimur æfingaleikjum hér á landi 19. og 21. mars. Leikirnir fara ekki fram í Laugardalshöll heldur á Hlíðarenda og í Kaplakrika. Svo virðist sem sýningin Verk og vit komi í veg fyrir að leikirnir séu spilaðir í Laugardalshöllinni en hún er á dagskrá í höllinni dagana 19. - 22. mars. Langt er síðan jafn stórt lið og Svíþjóð hefur komið hingað til lands að spila við karlalandsliðið og því má búast við frábærum leikjum. Miðasala er hafin á leikina á stubb.is. Ísland og Svíþjóð mættust á Evrópumótinu í janúar þar sem Ísland hafði auðvitað betur eftir frábæra spilamennsku. Það má því reikna með að Svíar mæti í hefndarhug í leikina þrátt fyrir að lítið sé undir. Ísland hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt á Heimsmeistaramótinu í janúar á næsta ári en það gerði liðið með góðum árangri á EM, 4. sætinu. Það má því reikna með fleiri æfingaleikjum en tíðkast hefur undanfarin ár þar sem landsleikjagluggarnir sem annars hefðu farið í umspilsleiki verða lausir. Fyrri leikurinn verður spilaður fimmtudaginn 19. mars á Hlíðarenda klukkan 19:30 og sá seinni laugardaginn 21. mars í Kaplakrika klukkan 17:00. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu á RÚV.