Í dag verður sýnt beint frá tveimur íþróttakappeikjum. Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í seinni æfingaleik liðanna í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á RÚV. Ísland vann fyrri leikinn 30-31. Þá fara 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna í fótbolta af stað með fimm leikjum. Sjónvarpsleikur dagsins er viðureign Vals og Grindavíkur/Njarðvíkur. Grindavík/Njarðvík er nýliði í Bestu deild kvenna og hefur farið ágætlega af stað. Liðin mættust í fyrst umferð deildarinnar og þar unnu Valskonur 2-1 sigur. Valur - Grindavík/Njarðvík er sýndur á RÚV.is klukkan 17:00. Hinir leikir dagsins eru Þór/KA - Stjarnan, Keflavík - Víkingur Reykjavík, Fram - ÍA og Selfoss - FH. Þá má sjá í opinni dagskrá á Livey. 16-liða úrslitum lýkur svo með þremur viðureignum á morgun.