Innlent | mbl | 15.5.2026 | 18:15 Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, er í frábærum málum samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallups. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Muni krefjast þess að Viðreisn sýni hollustu Aldrei heyrt frá Pétri hverju hann vilji breyta Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars » Fleiri tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mælist langstærstur framboða í borginni, degi fyrir borgarstjórnarkosningar, með 31,3%. Fengi flokkurinn inn átta borgarfulltrúa og sína bestu kosningu í Reykjavík síðan árið 2006. Þetta eru niðurstöður lokakönnunar þjóðarpúls Gallups sem ríkisútvarpið birti nú síðdegis. Miðflokkurinn sækir einnig í sig veðrið samkvæmt könnuninni og mælist með 10,9 prósent, sem myndi skila flokknum þremur borgarfulltrúum. Gætu Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn myndað meirihluta með Framsóknarflokknum sem fær tæp fimm prósent og einn fulltrúa. Viðreisn, undir forystu Bjargar Magnúsdóttur, er samkvæmt könnuninni ekki í stöðu til að ráða því alfarið hvort unnið sé til hægri eða vinstri. mbl.is/Karítas Píratar og Flokkur fólksins talsvert undir þröskuldi Samfylkingin mælist sem fyrr næststærst í borginni og fengi 21,5% atkvæða sem myndi skila flokknum fimm borgarfulltrúum. Vinstrið, undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, mælist sem fyrr með þrjá borgarfulltúa, með rúm 11 prósent og er hið nýstofnaða framboð því þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnunni. Viðreisn, sem hefur í flestum könnunum til þess mælst með þrjá fulltrúa, mælist nú með 9,8 prósent sem myndi aðeins skila flokknum tveimur borgarfulltrúm. Mælist flokkurinn því minni en Miðflokkurinn, sem sætir tíðindum. Sósíalistaflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mælast svo til jafn stórir, með tæp fimm prósent og myndu bæði framboðin fá einn borgarfulltrúa. Flokkur fólksins og Píratar fá báðir 2,3% sem nægir ekki til að ná inn borgarfulltrúa. Góðan daginn og Okkar borg mælast með undir eitt prósent. Sem fyrr er mögulegt að Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, myndi tveggja flokka meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. mbl.is/Karítas Erfitt að mynda meirihluta án Sjálfstæðisflokks Ljóst er að niðurstöðurnar sýna áhugaverða mynd af því hvernig borgarstjórn yrðu skipuð að loknum kosningum. Væri samkvæmt niðurstöðunum ekki hægt að mynda meirihluti frá miðju til vinstri en þó ber að hafa í huga að mjótt er á munum og munar ekki miklu svo Miðflokkurinn myndi missa sinn þriðja fulltrúa og Samfylkingin fengi þá sinn sjötta. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins. mbl.is/Karítas Ólíklegt er að myndaður yrði meirihluti án Sjálfstæðisflokksins samkvæmt þessum niðurstöðum. Gæti flokkurinn myndað meirihluta með Miðflokki og Framsókn eins og áður segir en einnig tveggja flokka meirihluta með Samfylkingu. Þá er meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Miðflokks einnig mögulegur en verður að teljast ólíklegur í ljósi þess að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, hefur nánast útilokað samstarf með Miðflokknum. Frétt af mbl.is Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Muni krefjast þess að Viðreisn sýni hollustu Aldrei heyrt frá Pétri hverju hann vilji breyta Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Gat ekki svarað „fráleitri“ spurningu Einars » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir fregnir af Britney stórlega ýktar Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Grindavík – Tindastóll kl. 19:15, bein lýsing Landsliðskonan aftur á skotskónum More than 32,000 have voted early Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki ávísun á meirihluta til vinstri „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ X26: Baráttusætin í Reykjavík Aldrei heyrt frá Pétri hverju hann vilji breyta Mest lesið Í gær Í vikunni Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Fagnar fjörutíu árunum með stæl Beint: X26 – Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Segir fregnir af Britney stórlega ýktar Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Grindavík – Tindastóll kl. 19:15, bein lýsing Landsliðskonan aftur á skotskónum More than 32,000 have voted early Umræðan Hvað færðu fyrir atkvæði þitt? Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ýmsir ágallar á verklagi Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Spá allhvassri austanátt á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Brynjar Níelsson á grillinu Fagnar fjörutíu árunum með stæl Beint: X26 – Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Telur Kristrúnu draga fylgið niður Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum „Við vorum algerlega búnir á því“ Lokanir eru nú þegar á Þingvöllum Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum