Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka í Reykjavík í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups. Flokkurinn bætir við sig 6,8 prósentustigum frá því í sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og mælist með 31,3% fylgi. Gangi sú könnun eftir yrði það mesta fylgi flokksins frá 2006. Næst á eftir Sjálfstæðisflokknum mælist Samfylkingin með 21,5% en flokkurinn fékk 20,3% atkvæða í síðustu kosningum. Þá mælist Vinstrið með 11,3%, Viðreisn með 9,8% og Sósíalistaflokkur Íslands með 4,8% en fast á hæla Sósíalistaflokksins mælist Framsóknarflokkurinn með 4,7%. Ef niðurstöður könnunarinnar gengju eftir næðu aðrir flokkar ekki manni inn í borgarstjórn. Píratar og Flokkur fólksin mælast með 2,3% fylgi hvor, Góðan daginn framboð með 0,6% og Okkar borg með 0,4%. Fylgi flokka í Reykjavík Þjóðarpúls Gallups í maí Nánar um kosningar á ruv.is/kosningar . &>" Niðurstöðurnar boða breytt landslag Niðurstöður könnunar Gallup draga upp breytta mynd af landslagi borgarstjórnar. Ef þær rættust fengi Sjálfstæðisflokkurinn 8 fulltrúa í borgarstjórn, tveimur fleiri en á yfirstandandi kjörtímabili. Fulltrúafjöldi Samfylkingarinnar héldist óbreyttur í 5. Þá fengju Vinstrið og Miðflokkurinn þrjá fulltrúa hvor. Miðflokkurinn náði ekki inn í borgarstjórn í síðustu kosningum. Vinstri græn fengu einn fulltrúa kjörinn og Sanna Magdalena Mörtudóttir var kosin í borgarstjórn fyrir Sósíalista. Saman standa þau að Vinstrinu í dag. Viðreisn eykur fylgi sitt og fengi tvo fulltrúa í stað eins. Framsókn tapar þremur fulltrúum Á meðan einhverjir flokkar virðast ætla að bæta við sig í kosningunum á morgun benda niðurstöður könnunarinnar einnig til fylgistaps flokka sem gegnt hafa lykilhlutverki í borgarstjórn á undanförnu kjörtímabili. Framsóknarflokkurinn fer úr fjórum fulltrúum í einn. Sósíalistar fengu tvo fulltrúa síðast en mælast nú með einn eftir klofninginn á kjörtímabilinu. Þá missa Píratar alla sína þrjá fulltrúa og Flokkur fólksins sinn eina fulltrúa. Sjötti maður Samfylkingar gæti skákað þriðja manni Miðflokksins Afar mjótt er þó á munum í skoðanakönnuninni og geta minnstu breytingar haft mikil áhrif á hvernig sætin í borgarstjórn skiptast á milli flokka. Til að mynda munar litlu að Samfylkingin skáki Miðflokknum og bæti við sig sjötta manninum á kostnað þriðja manns Miðflokksins. Það myndi svo riðla stöðunni þegar kemur að meirihlutamyndun. Líkur á meirihluta til hægri Miðað við niðurstöður könnunarinnar gætu Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn myndað eins manns meirihluta í borgarstjórn. Eins gæti Sjálfstæðisflokkur myndað meirihluta með Miðflokki og Viðreisn, þeir flokkar fengju samkvæmt könnuninni 13 af 23 sætum í borgarstjórn. Ekki er möguleiki á meirihluta til vinstri miðað við þessa skoðanakönnun. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað meirihluta með samtals þrettán borgarfulltrúa.