Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast áfram stærstu flokkarnir í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Gallup sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið og birt var í dag. Báðir flokkar hafa þó tapað fylgi frá síðustu könnun. Samkvæmt könnuninni mælast flokkarnir hnífjafnir með 26,4% fylgi hvor um sig. Ef kosið yrði í dag fengju þeir því sjö fulltrúa hvor. Í janúar mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 32,7% og fylgi Samfylkingarinnar 29,4% í könnun Gallup. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur því dalað um 6,3 prósentustig frá síðustu mælingum og fylgi Samfylkingarinnar um þrjú prósentustig. Til samanburðar fékk Sjálfstæðisflokkurinn 24,5% atkvæða og sex borgarfulltrúa í borgarstjórnarkosningunum 2022, en Samfylkingin 20,3% og fimm borgarfulltrúa. Miðflokkurinn mælist næstur á eftir flokkunum tveimur í könnun Gallup með 11,3% fylgi en fast á hæla Miðflokksins fylgir Viðreisn með 10,7%. Þar á eftir mælist Vinstrið með 8,7%, Framsóknarflokkurinn 4,6%, Flokkur fólksins 4,0%, Píratar 3,7%, Sósíalistaflokkurinn 3,1% og loks Okkar borg 1,2%.