Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hnífjafnt á toppnum

Read Full Article →

Í nýrri könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið, sem gerð var nú í febrúar, mældust Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingingin bæði með 26,4% fylgi sem þýðir að þeir myndu fá 7 borgarfulltrúa hvor ef gengið yrði til kosninga í dag. Til samanburðar mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 32,7% fylgi og Samfylkingin 29,4% í könnun Gallup frá því í janúar og hefðu miðað við þær niðurstöður fengið 8 borgarfulltrúa hvor. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst með jafn lítið fylgi frá því í október 2024 en í síðustu 10 könnunum hefur fylgi flokksins verið yfir 30%. Flokkurinn fékk 24,5% atkvæða í kosningunum 2022 og 6 borgarfulltrúa. Samfylkingin mældist síðast með minna fylgi í mars 2025. Flokkurinn fékk 20,3% atkvæða og 5 borgarfulltrúa í síðustu kosningum. Hildur Björnsdóttir var sjálfkjörin í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins og því vitað um nokkuð skeið að hún myndi leiða flokkinn en óljóst var hverjir aðrir myndu taka sæti á listanum. Listinn í heild sinni var ekki kynntur fyrr en á síðasta degi könnunarinnar, laugardaginn 28. febrúar. Hvað Samfylkinguna varðar lá fyrir í lok janúar hverjir myndu skipa sex efstu sæti flokksins og var Pétur Marteinsson kjörinn oddviti. Listinn í heild sinni var síðan kynntur fimmtudaginn 26. febrúar. Nánar verður fjallað um könnunina í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta nálgast blaðið í heild klukkan 19:30 í kvöld hér .

Share this article