Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gallup: Sjálfstæðisflokkurinn fengi 9 borgarfulltrúa

Read Full Article →

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn í könnun Gallup dagana 17.-29. apríl á fylgi flokkanna í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með með 30,1% fylgi en fékk 24,5% í borgarstjórnarkosningunum 2022. Yrðu þetta niðurstöður borgarstjórnarkosninga fengi flokkurinn níu borgarfulltrúa kjörna, þremur fleiri en flokkurinn hlaut í kosningunum 2022 þegar hann fékk sex borgarfulltrúa. Samfylkingin kemur næst með 22,4% fylgi og sex borgarfulltrúa, sem er einum fleiri en flokkurinn hlaut í borgarstjórnarkosningunum 2022. Samkvæmt könnun Gallup eykur Pétur Marteinsson fylgið úr 20,3% frá kosningunum 2022 og bætir við manni. Pétur Marteinsson fagnar sigri í prófkjöri Samfylkingarinnar í janúar. © Mbl (Mbl) Vinstri mælast þriðji stærsti flokkurinn með 13,0% og þrjá borgarfulltrúa — verulega aukning frá 2022 þegar Vinstri grænt framboð fékk aðeins einn borgarfulltrúa kjörinn. Þar á eftir koma Miðflokkurinn með 10% og Viðreisn með 9,1%, sem fengju báðir tvo borgarfulltrúa kjörna. Miðflokkurinn náði engum manni inn í borgarstjórnarkosningunum 2022, og Viðreisn fékk þá einn fulltrúa. Sósíalistaflokkur Íslands næði inn einum borgarfulltrúa með 5,2% fylgi, sem er einum færri en flokkurinn hlaut fékk í kosningunum 2022. Þrír flokkar mælast utan borgarstjórnar samkvæmt könnuninni. Píratar mælast með 3,3%, Framsóknarflokkurinn með 2,9% og Flokkur fólksins með aðeins 1,6% — og fengju þeir því engan borgarfulltrúa kjörinn. Framsóknarflokkurinn er nú með fjóra borgarfulltrúa, Píratar eru með 3 borgarfulltrúa og Flokkur fólksins með 1 fulltrúa.

Share this article