- What: Bots used to scrape Facebook photos
- Impact: Facebook users
Hinir ýmsu landsmenn hafa lent í því á undanförnum dögum að bottar ræni af þeim myndum á Facebook og noti á nýja gerviaðganga sem hafa meðal annars verið duglegir í að skrifa athugasemdir við stjórnmálaumræðu hjá Viðreisn. Svo virðist sem ekkert mynstur sé á bak við það hver lendir í því að láta ræna af sér ljósmyndum en sumir aðganganna eru með 4-5 ljósmyndir, eiga allt að 80 vini og hafa sýnt eðlilega Facebook virkni. Allir bottarnir eiga það sameiginlegt að hafa verið búnir til nýlega. „Mjög scary“ „Þetta er áhugavert og á sama tíma mjög scary því maður er bara venjulegur úthverfapabbi,“ segir Guðmundur Ólafs Kristjánsson, einn af þeim að lenti í því að láta ræna sig myndum. Undir hans mynd var búinn til nýr aðgangur undir nafninu Gabríel Rafnsson. Eftir að Guðmundi barst athugasemd um nýja gerviaðganginn tók hann sig til og tilkynnti hann til Facebook yfirvalda og nú er aðgangurinn horfinn. Aðgangurinn hans Gabríels Rafnssonar var sá nýlegasti sem fréttastofa tók fyrir en sumir aðganganna hafa verið til frá því um miðjan apríl. Bottarnir eru betur gerðir en áður fyrr Gerviaðgangar á Facebook eru ekki nýir af nálinni en svo virðist sem þeir eru að verða betur gerðir en áður fyrr. Athugasemdirnar sem berast frá þeim séu margar hverjar ágætlega skrifaðar og erfitt er að átta sig í fljótu bragði á því hvaða athugasemd er skrifuð af gerviaðgangi og hver ekki. „Maður þarf að staldra við. Þetta er alltaf að verða fullkomnara og fullkomnara. Íslenskan hjá þessum bottum er ekki eins og hún var fyrir ári, tveim eða þremur árum þar sem fallbeygingin var eitthvað skrítin,“ sagði Guðmundur.