Íslenska jeppavörumerkið Ísar vinnur nú að undirritun kaupsamninga við fimm íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og ýmsa aðra aðila um afhendingu á allt að tólf jeppum sem verða afhentir á næsta ári. Meðal þeirra er íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Mountain Taxi sem hefur þegar keypt bifreið úr fyrstu framleiðslulotu Ísar. Samhliða því munu fulltrúar Ísar sækja ráðstefnu í Ottawa síðar í þessum mánuði til að kynna jeppa fyrirtækisins fyrir kanadískum aðilum. „Það er nánast ótrúverðugt að einhverjir einstaklingar á Íslandi séu komnir í þá stöðu að geta hafið framleiðslu á frumhönnuðum farartækjum. Við erum heldur ekki bara að ræða um einn bíl, heldur heila farartækjalínu fyrir fjölda markaða um allan heim,“ segir Ari Arnórsson, framkvæmdastjóri Jaka ehf. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .