- What: Ragnar Sigurðsson has been re-elected as the leader of the Independence Party in Fjarðabyggð.
- Impact: He will lead the party in the upcoming elections and continue as chairman of the municipal council.
Ragnar er formaður bæjarráðs FjarðabyggðarRÚV Ragnar Sigurðsson er sjálfkjörinn oddviti lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, þetta var ákveðið á fulltrúaráðsfundi flokksins í dag. Ragnar var einnig oddviti flokksins í síðustu kosningum og er starfandi formaður bæjarráðs. Ragnar segir listann vera samblöndu af reynslu og nýliðun sem veiti kraft í komandi kosningabaráttu. Sjálfur segist hann vera spenntur fyrir samstarfinu. ,,Ég er fullur tilhlökkunar að starfa með þessum sterka og öfluga hópi fyrir íbúa Fjarðabyggðar“, segir Ragnar. Tólf einstaklingar voru í framboði fyrir efstu sex sæti listans. Annað sæti skipar Kristinn Þór Jónasson og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir það þriðja. Sex efstu sæti lista Sjálfstæðisflokks í Fjarðarbyggð.Aðsend