Staðfestur listi Sjálfstæðisflokksins verður kynntur á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV er líklegt að fimm efstu á lista Sjálfstæðisflokksins verði eftirfarandi: Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins Bjarni Guðjónsson, fyrrverandi fótboltamaður Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri sjónvarps hjá RÚV. Vitað er að Hildur kemur til með að leiða listann sem oddviti eftir að hún var sjálfkjörin sem eini frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri. Ekki er hægt að segja nákvæmlega til um hvernig raðast í næstu sæti á listanum. Líklegt þykir þó að röðunin verði svipuð þeirri sem hér birtist. Kjartan og Marta detta út Þetta er talsverð breyting frá þeim lista sem boðinn var fram í síðustu kosningum. Þar ber helst að nefna að Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir eru ekki í efstu sætum en þau skipuðu 3. og 4. sæti í síðustu kosningum. Það ætti þó ekki að koma á óvart þar sem setja þarf saman lista sem getur unnið með Hildi og hefur borið á því á liðnu kjörtímabili að Hildur, Kjartan og Marta hafi ekki verið fyllilega samstíga. Þá gerir Friðjón R. Friðjónsson, núverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ráð fyrir því að verða varaborgarfulltrúi á næsta kjörtímabili. Hann skipaði 6. sæti lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar. Myllusteinn flokksins í síðustu kosningum var annars vegar ósamstæður listi og hins vegar að sárin voru ekki gróin eftir hart prófkjör. Núna er þó meiri tími til að þjappa hópnum saman sem ætti að gefa samstæðari lista. 15 manna uppstillingarnefnd hefur unnið að því að setja listann saman. Líklegt þykir að of mikið hafi verið gert úr flokkadrætti í valinu. Fyrst og fremst sé verið að velja fólk og að finna þurfi 46 manns eftir aldri, kyni, póstnúmerum og fleiru. Ekki sé horft mikið til þess hvort fólk sé hallt undir ákveðna einstaklinga innan flokksins líkt og Guðlaug Þór Þórðarson eða Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.