- What: A lawsuit in California alleges that social media companies are responsible for the mental health issues of a young woman.
- Impact: The lawsuit highlights the ongoing debate about the negative effects of social media on mental well-being, especially among young people.
Meira en helmingur landsmanna segir upplifun sína af samfélagsmiðlun vera verri en þegar þeir byrjuðu að nota þá, samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar. Áhrif samfélagsmiðla hafa verið mikið í umræðunni og Ísland er ekki undanskilið, líkt og sést hefur á umræðu um mögulegt símabann í grunnskólum og samfélagsmiðlabann fyrir börn sem mennta- og barnamálaráðherra hefur lagt til. Fjöldi rannsókna bendir til þess að mikil notkun samfélagsmiðla hafi slæm áhrif á andlega líðan fólks. Um þetta er tekist fyrir dómstóli í Kaliforníu, þar sem ung kona hefur stefnt stærstu samfélagsmiðlafyrirtækjunum, sem hún segir hafa valdið sinni vanlíðan. Hér á landi segir rúmlega helmingur landsmanna að upplifun þeirra af samfélagsmiðlum sé verri nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá, samkvæmt könnun Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd . Álíka margir sögðust vikulega rekast á efni sem innihélt hatursfullar tilvísanir í garð ákveðinna hópa. Eiga erfitt með að borða án símans Rúmlega helmingur sagðist oft vera í símanum á salerninu. Tæpur þriðjungur fólks á aldrinum átján til 29 ára sagðist þurfa að hlusta eða horfa á eitthvað til að sofna og nærri helmingur þess aldurshóps sagðist eiga erfitt með að borða án þess að nota símann á meðan. Unga konan í bandaríska dómsmálinu hefur ekki verið nafngreind og er titluð með bókstöfunum K.G.M. í dómskjölum. Lögmaður hennar lýsir samfélagsmiðlunum sem gildru sem miðast að því að fólk ánetjist notkun þeirra. „Þau vildu ekki notendur, þau vildu fíkla,“ sagði lögmaðurinn í dómssal í vikunni. Sátt náðist við Snapchat og TikTok áður en réttarhöldin hófust en málið beinist einnig gegn Youtube og Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram. Meta heldur því fram að aðrir þættir hafi stuðlað að vanlíðan konunnar en óhófleg samfélagsmiðlanotkun. Konan segist hafa notað Instagram klukkustundum saman á hverjum degi, lengst sextán klukkustundir á sólarhring. Yfirmaður Instagram settist í vitnastúku í vikunni og varði miðilinn. Hann viðurkenndi að sextán klukkustundir á Instagram væri óhófleg notkun en sagði hana ekki jafngilda fíkn.