Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Víkingar tóku toppsætið um stund

Read Full Article →

Valdimar Þór Ingimundarson á fleygiferð.Mummi Lú Víkingur Reykjavík er komið í toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 0-2 sigur gegn ÍBV. Víkingar farr þar með í 19 stig og eru taplausir eftir sjö leiki. Liðið fór upp fyrir KR sem mætir Fram í kvöld. KR er sem stendur með 18 stig og hefur unnið alla leiki sína. Markalaust var í hálfleik en Óskar Borgþórsson kom Víkingi yfir með skalla eftir fyrirgjöf Elíasar Más Ómarssonar á 51. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson tvöfaldaði svo forskot Fossvogsliðsins með marki frá miðju eftir að Ari i Haraldstovu Petersen átti misheppnaða hreinsun. ÍBV er sem fyrr í neðsta sæti en liðið er án sigurs að sjö leikjum loknum. Liðið er með eitt stig.

Share this article