Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Niðurstöðurnar ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra

Read Full Article →

Prófessor í stjórnmálafræði segir ljóst að Samfylkingin þurfi að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum. Niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna séu ákveðið viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, sem hingað til hafi verið í miklum meðbyr. Nýr veruleiki fyrir Samfylkinguna „Þetta er í fyrsta sinn sem Kristrún Frostadóttir fær á sig mikinn mótbyr og hún nær alls ekki þeim árangri í þessum kosningum sem Samfylkingarfólk, að ég hygg, myndi ætla og vilja. Þannig að þetta er auðvitað ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra, það er algjörlega ljóst,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Flokkurinn standi frammi fyrir nýjum veruleika. „Þetta er auðvitað versta útkoma Samfylkingarinnar í Reykjavík og það er auðvitað mjög sárt fyrir flokk sem svona leiðir stjórnmálin á landsvísu,“ segir Eiríkur. „Þannig að Samfylkingin þarf auðvitað að einhverju leyti að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum.“ Þá séu niðurstöður í Hafnarfirði einnig mikið áfall fyrir flokkinn „Varaformaður flokksins geldur algert afhroð í Hafnarfirði sem löngum hefur verið talið helsta vígi krata á Íslandi. Það er feikilegur skellur líka fyrir Samfylkinguna og hugsanlega gæti orðið einhver endurnýjun í forystu flokksins í kjölfarið á þessum kosningum.“ Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður kosninganna viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, sem hingað til hafi verið í miklum meðbyr. Flokkurinn þurfi að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum. Flokkur fólksins í „algjörri úlfakreppu“ Eiríkur segir augljóst að ríkisstjórnarflokkarnir séu ekki að ríða feitum hesti frá kosningunum, sem gæti gefið til kynna að þau málefni sem þeir setja á oddinn hafi ekki sama hljómgrunn og flokkarnir myndu vilja. „Þetta er auðvitað verra í rauninni fyrir Flokk fólksins sem er einn af forystuflokkum landsins í ríkisstjórn og nær ekki manni inn í Reykjavík og hefur auðvitað verið grátt leikinn í skoðanakönnunum á landsvísu líka að undanförnu,“ segir Eiríkur. „Þannig að það er flokkur í algjörri úlfakreppu og bara óvíst að hann eigi langa lífdaga auðið í íslenskum stjórnmálum haldi þetta áfram á viðlíka braut.“ Úrslitin ekki síður mikilvæg fyrir formann Sjálfstæðisflokksins Eiríkur segir niðurstöðurnar í borginni stórmerkileg tímamót. Allar líkur séu á að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, taki við stjórnartaumum eftir langa valdatíð Samfylkingarinnar. Úrslitin séu ekki síður mikilvæg fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins . „Hún hefur átt algjörlega verulega á brattann að sækja og hún hefur haft meira á brattann að sækja heldur en formenn sem taka við stjórnmálaflokkum eiga yfirleitt,“ segir Eiríkur. „Því yfirleitt kemur ákveðinn meðbyr þegar fólk tekur við forystu. En hún lendir strax í rauninni bara í algjörri úlfakreppu með flokkinn í fylgiskönnunum. Og nú rís flokkurinn upp í þessum sveitarstjórnarkosningum og hún svona hefur þar af leiðandi svona sýnt hvað í henni býr.“

Share this article