Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar forsætisráðherra um að misbeita valdi embættisins með því að tala fyrir kosningaloforðum Samfylkingarinnar sem fela í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Samfylkingin kynnti um síðustu helgi áherslur sínar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Var að gert á blaðamannafundi á Smáratorgi í Kópavogi. Þar er meðal annars kveðið á um greiðsluþak á leikskólagjöld og lögfestingu til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi. Stjórnarandstaðan hefur spurt fulltrúa Flokks fólksins og Viðreisnar út í hvort þeir flokkar hafi verið með í ráðum eða hvort þetta hafi verið rætt við ríkisstjórnarborðið. Hafa þeir báðir sagt að svo hafi ekki verið. Þá gerði varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins athugasemdir við að aðstoðarmaður forsætisráðherra, sem er pólitískt skipaður, hafi sent út fundarboð á blaðamannafundinn úr netfangi á vegum forsætisráðuneytisins. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók málið upp í óundirbúnum fyrirspurnartíma í morgun. og sakaði forsætisráðherra um að nota embætti sitt til að vinna að stefnumálum Samfylkingarinnar, þar kosningaloforðin útheimta framlag frá ríkinu. „Hér forsætisráðherra hafa stigið fram í krafti embættis síns með kosningaloforð fyrir eigin flokk án þess að gert sé ráð fyrir því í fjármálaáætlun og án þess að nokkur samstaða sé um tillögurnar innan ríkisstjórnarinnar.“ Kristrún sagði það af og frá og minnti Guðrúnu á að hún er ekki bara forsætisráðherra, heldur líka formaður Samfylkingarinnar. „Það liggur alveg fyrir að það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér þrátt fyrir að ég sé orðin forsætisráðherra. Þetta er stefna Samfylkingarinnar, hún verður það áfram en hún mun ekki komast á laggirnar nema að við séum með fólk í sveitarstjórnum sem styður þetta. Um það snýst þetta útspil.“ Umræðunni lauk ekki þar því að loknum óundirbúnum fyrirspurnartíma komu stjórnarandstæðingar upp í röðum til að kvarta undan því að ráðherrar svari ekki þeim spurningum sem að þeim er beint. Dagur B. Eggertsson kom formanni sínum til varnar. „Þetta er stóra vandamálið, að við séum loksins komin með forsætisráðherra sem lætur sig sveitarstjórnarstigið raunverulega varða, lætur sig leikskólastigið raunverulega varða, lætur sig þau verkefni sem brenna á fólki í daglegu lífi raunverulega varða. Og nei, heyrðu, það var látið vita af því í gegnum netfang aðstoðarmanns hennar — nema hvað?“ Tómas Þór benti á í þeirri umræðu að Samfylkingin er með þrjá starfsmenn á sinni skrifstofu. „Einn þeirra er meðal annars verkefnastjóri sveitarstjórnarmála. Ég hefði haldið í mikilli einfeldni minni að hann myndi mögulega senda þessa pósta en ekki aðstoðarmaður forsætisráðherra því að það er alls ekki í lagi að forsætisráðuneytið og forsætisráðherra fari hér í einhvern pólitískan einleik fyrir einn ríkisstjórnarflokk, sama hversu umhugað honum er um sveitarstjórnarmál.“