Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 9:20 „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sat fyrir svörum eftir ríkisstjórnarfund í nýjum garðskála Ráðherrabústaðarins við Tjarnargötu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ekkert óeðlilegt við það að hún sem forsætisráðherra kynni „útspil“ Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningar, þó svo að þau málefni snerti á samskiptum ríkis og sveitarfélaga. „Við erum að fara í sveitarstjórnarkosningar. Ég er formaður Samfylkingarinnar. Þetta er útspil Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarframboð hringinn í kringum landið,“ segir Kristrún í samtali við Morgunblaðið. Umrætt „útspil“ sem kynnt var um liðna helgi felur í sér að ríkið taki þátt í fjármögnun leikskóla sveitarfélaga með „brúun bilsins“ milli fæðingarorlofs og skólagöngu að augnamiði. Mun beita sér fyrir málinu Kristrún segir að hún muni beita sér fyrir málinu innan ríkisstjórnar, þótt tillögurnar séu hvorki fjármagnaðar né hluti af stjórnarsáttmála. Samhliða þessu boðar Samfylkingin þak á leikskólagjöld og fullan systkinaafslátt. „Við þurfum að byrja að setja markið hátt. Finnst okkur eðlilegt að við séum eina norræna landið sem ekki hefur brúað þetta bil? Og nú er ég ekki bara að tala um tímann frá því að fæðingarorlof klárast og inn í leikskóla heldur að það sé einhvers konar eðlileg ábyrgðarskipting á tímanum frá því að þú kemur í grunnskóla. Við erum eina norræna landið þar sem ríkið hefur enga aðkomu að því,“ segir Kristrún. „Við erum að setja það skýrt fram að það er pólitískt markmið Samfylkingarinnar að okkar fulltrúar í sveitarstjórnum muni tala fyrir því að það verði gengið til samninga við ríkið um þetta mál. Það þarf að byrja að ganga til samninga. Síðan þarf að skoða hvernig kostnaðarskiptingin verður.“ Skrýtið að forsætisráðherra leggi viðsemjendum vopn í hendur? Hún segir að ýmsar tölur hafi verið nefndar, en bendir á að í skýrslu aðgerðahóps til Stjórnarráðsins hafi kostnaður vegna fyrsta skrefsins verið metinn á um tíu milljarða króna. „Það þarf að setjast niður við samningaborð og semja um hversu stóran hluta ríkið tekur af því, hversu stóran hluta sveitarfélögin taka af því. En þetta er okkar pólitíska markmið og ég mun tala fyrir þessu.“ Er ekki skrýtið að forsætisráðherra leggi viðsemjendum vopn í hendur? „Við erum ennþá í pólitík. Ég er formaður í stjórnmálaafli og þetta er eitthvað sem ég mun leggja áherslu á [fyrir sveitarstjórnakosningar]. Samstarfsflokkar mínir vita vel hver skoðun mín er á þessu máli, enda talaði Samfylkingin fyrir þessu í aðdraganda kosninga, og þetta hefur síður en svo verið slegið út af borðinu þó að það hafi ekki verið geirneglt í stjórnarsáttmála.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrstu viðbrögð geta bjargað lífi dýrsins þíns Dæmdur fyrir að taka dreng hálstaki eftir dyraat Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Lögreglan oft kölluð að kaffistofu „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Fyrstu viðbrögð geta bjargað lífi dýrsins þíns Dæmdur fyrir að taka dreng hálstaki eftir dyraat Ræddi Liverpool og Arsenal rétt fyrir andlátið Vildi ekki hitta þingmennina Vonbrigði með niðurstöðuna Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Vinsælum veitingastöðum lokað Óábyrgt að fara að lofa einhverju Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Lögreglan oft kölluð að kaffistofu „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Kennarasambandið braut jafnréttislög Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá