Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að forsætisráðherra hafi misbeitt valdi ráðuneytis síns þegar aðstoðarmaður hennar notaði tölvupóstfang ráðuneytisins til að kynna viðburð á vegum Samfylkingarinnar. Samfylkingin hélt blaðamannafund um helgina þar sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, kynnti áherslur flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í umræðum um störf þingsins vakti Tómas Þór athygli á því að fundarboðið hafi komið úr forsætisráðuneytinu, það er frá aðstoðarmanni forsætisráðherra úr netfangi ráðuneytisins. „Þarna er sjálfu forsætisráðuneytinu beitt í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk.“ Sagði Tómas það óboðlegt í lýðræðisríki að valdamesta embætti stjórnarráðsins sé beitt í slíkum tilgangi. „Ég hef fullan skilning á því að Samfylkingin skjálfi á beinunum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, sér í lagi í Reykjavík þar sem arfleifð hennar verður að taka lifrarpylsu úr munni barna. En það er ekkert annað en misbeiting á valdi og ólýðræðislegt í alla staði að beita sjálfu forsætisráðuneytinu í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk.“