- What: The US Secretary of State addressed the Munich Security Conference, discussing European relations.
- Impact: The US continues to pressure European nations to increase their defense spending.
Annar dagur árlegrar öryggisráðstefnu í München var í dag. Ræða utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, var fyrst á dagskrá. Í ræðu sinni fór hann fögrum orðum um Evrópu, sögu álfunnar og menningu, sagði Bandaríkin barn Evrópu og að Bandaríkjamenn vildu fá bandamenn sína á meginlandinu með sér í breytingar á heimsmyndinni. Þótt innihald ræðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið í takti við stefnu Trump-stjórnarinnar hingað til voru umbúðirnar aðrar og tónninn mildari. Sérfræðingur í alþjóðamálum segir grundvallarkröfu Bandaríkjamanna til Evrópuríkja vera enn þá sömu þrátt fyrir að tónn bandarískra ráðamanna á öryggisráðstefnunni í München í dag hafi verið mildari en áður. Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum, segir að þrátt fyrir breyttan tón Rubio sé grundvallarkrafa Bandaríkjamanna til Evrópubúa enn sú sama, ríkin verði að taka sér tak í varnarmálum og stórauka útgjöld til varnarmála. „Og við erum að tala um stóran bita. Við erum að tala um að frá sjónarhóli Bandaríkjamanna þá muni, innan kannski 10 ára að mestu leyti, þá muni Evrópuríkin og Kanada í rauninni standa undir vörnum og öryggi Evrópu,“ segir Albert. Utanaðkomandi stuðningur við Úkraínu enn óbreyttur Rubio talaði um breytt ástand heimsins í ræðu sinni. Albert segir sjónir Bandaríkjanna beinast í auknum mæli að nýrri þungamiðju í alþjóðakerfinu, Asíu og Kyrrahafssvæðinu. „Þar með er talað um Evrópu í miklu minna mæli og þar með auðvitað að Kína sem rísandi og vaxandi veldi eins og við blasir.“ Bandaríkin hættu í fyrra beinum hernaðarstuðningi við Evrópu og Albert segir að Evrópuríki hafi fyllt í það skarð. Af þeim sökum sé utanaðkomandi stuðningur við Úkraínu óbreyttur, sem skipti höfuðmáli.