Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Evrópa ætlar að verða óháðari Bandaríkjunum

  • What: The article discusses Europe's ambition to become more independent from the United States in matters of security and defense.
  • Impact: This shift could lead to increased investment in European defense capabilities and a divergence in policy from the US.
Read Full Article →

Evrópa ætlar að verða óháðari Bandaríkjunum þrátt fyrir að tónn Bandaríkjastjórnar á öryggisráðstefnunni í München í Þýskalandi hafi verið mildari en áður, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Tónninn hér er sá að Evrópa er sterkari eftir þennan fund, hún ætlar að vera sjálfstæðari, hún ætlar að vera óháðari. Hvort sem það er við Bandaríkin eða önnur stórveldi, þess vegna er hún að fjárfesta meðal annars svona mikið í varnar- og öryggismálum eins og raun ber vitni,“ segir Þorgerður Katrín. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á mikilvægi bandalags Bandaríkjanna og Evrópu. Ræða Rubios var töluverður viðsnúningur frá ræðu J.D. Vance varaforseta Bandaríkjanna fyrra en þó að tónninn hafi verið mildari var innihaldið í ræðunum í meginatriðum það sama. „Við erum auðvitað ekki að deila öllum gildum og stefnum sem koma fram hjá MAGA-hópnum. Hann nefndi loftslagsbreytingar, við vitum alveg hver stefnan er í jafnréttis- og mannréttindamálum og það er ekki okkar stefna,“ segir Þorgerður Katrín. „Það breytir ekki því að vinir halda áfram að tala saman þó að þeir séu ekki sammála um allt. Það var það sem mér fannst gott að kom út úr þessu. Það er verið að undirstrika mikilvægi sambandsins þvert yfir Atlantshafið um leið og það er alveg ljóst, eftir að hafa verið hér þessa daga á ráðstefnunni, að við erum að sjá sterkari og samhentari Evrópu byggjast upp núna.“ Þorgerður telur vilja Bandaríkjastjórnar til samtals við Evrópu vera meiri en áður. Evrópuríkin séu staðráðin í að halda góðu sambandi við Bandaríkin en líka standa í auknum mæli á eigin fótum. „Evrópa er komin svolítið á næsta stig í samskiptum við Bandaríkin. Við viljum öll halda þessu dýrmæta sambandi, það erum við að undirstrika, en það verður ekki bara gert á forsendum Bandaríkjanna,“ segir Þorgerður Katrín. „Það eru mikilvæg gildi sem meðal annars eru undirstaðan í okkar utanríkisstefnu um lýðræði, frelsi, mannréttindi, friðhelgi landamæra, virðingu við alþjóðalög. Við erum ekki að kvika frá þeim. Það er gott að skynja að Evrópusambandið og önnur Evrópuríki eru ekki heldur að gera það.“

Share this article