- What: Icelandic Foreign Minister discusses the need for Europe to be more independent in security matters at the Munich Security Conference.
- Impact: Focus on European self-reliance in security, especially concerning Russia and the Baltic region.
Innlent | mbl | 15.2.2026 | 12:57 Evrópa þarf að verða sjálfstæðari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í pallborði í morgun um Rússland og Eystrasaltið. Við hlið hennar situr Radoslaw Sikorski, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Póllands. mbl.is/Karl Blöndal Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er þeirrar hyggju að öryggisráðstefnan í München hafi sýnt að Evrópa þurfi að geta staðið á eigin fótum og þurfi að gæta sín á að vera ekki upp á aðra komin. Þetta þýði ekki að Evrópa eigi að einangra sig, heldur vera óháð öðrum, sérstaklega þegar kemur að öryggismálum. Öryggisráðstefnan í München er ein sú helsta, sem haldinn er heiminum og sækja hana tugir þjóðarleiðtoga auk ráðherra og áhrifamanna víða að. Að þessu sinni hefur eitt helsta umræðuefnið verið að gjá hefði myndast milli Evrópu og Bandaríkjanna og var ræðu bandaríska utanríkisráðherrans, Marcos Rubios, beðið með eftirvæntingu. Þarf að treysta samband Evrópu og Bandaríkjanna Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í upphafsræðu sinni á öryggisráðstefnunni að hún væri eins og skjálftamælir, sem sýndi stöðuna í alþjóðamálum, ekki síst þegar kæmi að öryggi. „Ég er sammála Merz að þetta er ákveðinn skjálftamælir og maður fann að það var undirliggjandi spenna þegar maður kom hér á föstudag að það var undirliggjandi spenna meðal annars um hvað Rubio myndi segja og hvað kæmi frá Kína, Evrópu og svo framvegis,“ sagði Þorgerður Katrín undir lok ráðstefnunnar í morgun eftir að pallborði þar sem hún var meðal þátttakenda lauk á vegum Eystrasaltsráðsins um öryggismál. „Það er mikil gerjun og það sem ég tek frá þessari ráðstefnu er að það þarf að treysta sambandið milli Evrópu og Bandaríkjanna enn frekar eins og Rubio gaf til kynna og er gott. Það er líka í takti við það sem Bandaríkjamenn sögðu á NATO-fundi, sem ég var á fyrr í vikunni. Sterk Evrópa þýðir líka sterkara samband yfir Atlantsála. Það er jákvætt.“ Ekki lengur á forsendum Bandaríkjanna Þorgerður Katrín kvaðst líka finna Evrópa ætlaði ekki lengur að láta hluti aðeins gerast á forsendum Bandaríkjanna, heldur láta finna fyrir því fyrir hverju hún stæði, og nefndi líka mikill samskipti Evrópuríkjanna við Kanada. „Ég hef átt mjög góða fundi og samtöl með mínum kollegum við Anitu Anand, utanríkisráðherra Kanada, og David McGuinty varnarmálaráðherra og sé fram á það að okkar samstarf muni aukast,” sagði hún. „Við ætlum dæmis að fara í að uppfæra samkomulag frá 2011 í öryggi og vörnum. Það kom út úr fundinum, sem ég átti í gær með honum.“ Hún rifjaði upp að hún hefði hit Anand í Nuuk á Grænlandi og þar hefðu þær getað stillt sér upp með íslenska fánann og þann kanadíska hlið við hlið. „Norðurlöndin og Kanada eru komin með sameiginlegan þráð og bara á því ári frá því að ég byrjaði hefur margt gerbreyst í samskiptum,“ sagði hún. „Ég held að það mikilvægasta í dag, eins og margir þjóðarleiðtogar hafa bent á, hvort sem það er Merz eða Carney, okkar hlutverk í dag er að viðhalda og styrkja pólitísk sambönd og alþjóðleg samskipti, ekki síst hjá líkt þenkjandi þjóðum.“ Hún kvaðst einnig taka frá ráðstefnunni að komin væri á meiri eining meðal Evrópuríkja. „Og þá er ég að segja meðal allra, Breta, Norðmanna, Íslendinga og restarinnar af Evrópu. En maður tekur með sér að það þurfi einfaldlega að sinna hagsmunagæslu og gera það enn meira nokkru sinni fyrr.“ Þorgerður kvaðst hafa átt marga tvíhliða fundi í München. Hún nefndi einnig fund í gærmorgun með NB8, hópi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, með Andrí Síbíha, utanríkisráðherra Úkraínu. „Þetta er sterkasti vinahópurinn og stuðningsaðilinn við Úkraínu ásamt líklega Póllandi og Þýskalandi. Hann fór yfir stöðuna í Úkraínu og þessar grimmilegu árásir á borgarlega innviði. Þær væru frekar fallnar til að magna reiðina í Úkraínu og það er enginn uppgjafartón.“ Segja að Pútín muni aldrei semja Hún sagði að einnig hefði verið farið yfir fyrirhugaðar samningaviðræður í Genf og það væri ljóst að efnahagurinn í Rússlandi væri bágborinn. „Það er byrjað að bíta og það hressilega. Pútín virðist þó vera sama enda hangir hans líf á þeim þræði að þetta stríð haldi áfram. Ég hef átt samtöl við fólk með mikla innsýn inn í pólitík hér sem bendir á að Rússar muni aldrei semja. Þeir muni frekar reyna að gera allt annað en að semja nema þeim verði einfaldlega þrýst út í það draga sig hægt og rólega tilbaka svo enginn taki eftir. En þeir munu eiga í mjög miklum erfiðleikum með að semja ef marka má þá sérfræðinga í Rússlandi, sem ég hef talað við, en sem dæmi má nefna að nú falla 30 þúsund rússneskir hermenn á mánuði, en nýliðun í rússneska hernum er ekki í samræmi við það, hún er innan við 25 þúsund. Þetta er orðið snúið ástand og við eigum ekki að láta segja okkur að Rússar hafi það gott eins og kemur frá rússnesku áróðursvélunum.“ Heimurinn má ekki skiptast í stórveldasvæði Fyrir fjórum árum komu Bandaríkjamenn á öryggisráðstefnuna í München og vöruðu við liðssafnaði Rússa á landamærum Úkraínu, en af hálfu Evrópu var viðkvæðið frekar að menn tryðu því ekki að af yrði. Nú var ógnin af Rússlandi eitt helsta umræðuefni fulltrúa Evrópuríkjanna á ráðstefnunni, en Bandaríkjamenn lítt sýnilegir í þeirri umræðu. „Það er mikið áhyggjuefni og það er áhyggjuefni hvernig verið er að meðhöndla Rússland af hálfu stórveldanna. Það má ekki gerast að við sjáum heiminn skiptast í eitthvað stórveldasvæði og svo bara geta hin litlu og meðalstóru ríkin étið það sem úti frýs,“ sagði hún. „Ég vil þó segja að hluti af Evrópu tók ógnina ekki alvarlega fyrir fjórum árum, það er frekar hægt að gagnrýna þann part Evrópu sem var sinnulaus, hvort sem það erum við Íslendingar eða vesturhluti Evrópu. Ég man ítrekað að á hverjum einasta fundi, sem maður sótti sem þingmaður í utanríkismálanefnd eða hjá NATO vöruðu einmitt ríki, sem eiga landamæri að Rússlandi, Eystrasaltsríkin, Pólland, að alltaf þyrfti að hafa varann á þegar kæmi að Rússlandi. Ég var síðan á fundi í París tveimur eða þremur dögum eftir innrásina þar sem fólk grét, en sagði um leið: Þetta höfum við verið að segja ykkur. Það er miklu frekar hægt að gagnrýna værukærð Vesturlanda, hvort sem það er Bretland, Þýskaland, Frakkland, þessi stóru ríki sem vonuðust til að Rússland myndi breytast. Rússland greinilega hefur ekkert breyst og Evrópa er búinn að læra þann bitra sannleika að hún þarf að vera óháð öðrum. Það hluti af þeirri heimsmynd, sem er að dragast upp að lærdómurinn af því að hafa treyst á Rússland, keypt af þeim gas og fleira, er Evrópa þarf að vera sjálfstæðari. Hún þarf að halda góðu sambandi við Bandaríkin, en ekki að vera háð þeim, Rússlandi eða Kína.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Evrópa þarf að verða sjálfstæðari Staðfesta komu Portúgalans Beint: Formannskjör hjá Framsókn Þýska stjarnan meidd og missir af toppslagnum Íran er reiðubúið til málamiðlana Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Rof við Landeyjahöfn Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Kjósa um sameiningu í mars Telur skólann vera að bregðast syni sínum „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Fær rúmar 45 milljónir í vasann Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Dimmalimm í einangrun Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Erfiðast að læra íslensku Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann Ástarlífið er í rúst! Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Nágrannar hyggjast kæra Keyrði með farþegann beint á lögreglustöðina Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Evrópa þarf að verða sjálfstæðari Staðfesta komu Portúgalans Beint: Formannskjör hjá Framsókn Þýska stjarnan meidd og missir af toppslagnum Íran er reiðubúið til málamiðlana Samferða þjóðinni til farsældar Endurskoða ber umferðarskipulag við Höfðabakka Fleira áhugavert Fangaverðir liggja ekki undir grun Rof við Landeyjahöfn Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Telur skólann vera að bregðast syni sínum „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Fær rúmar 45 milljónir í vasann Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Dimmalimm í einangrun Interpol rannsakar árásina á Grund Rof við Landeyjahöfn Erfiðast að læra íslensku Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann Ástarlífið er í rúst! Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Legurými staðið til boða í mánuði Enginn veit hvað gerist næst Fær rúmar 45 milljónir í vasann Rof við Landeyjahöfn Beið sárþjáður fram á morgun Jafnvel verra en að drepa mann Rósin segir skilið við fulltrúaráð Samfylkingarinnar „Þessar þjóðir eru ekki í ESB“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárá