- What: New Israeli law allows death penalty for Palestinians accused of terrorism
- Impact: Legal changes in Israel affecting Palestinian detainees
Umdeild lög tóku gildi í gærkvöld sem heimila dauðarefsingu yfir þeim Palestínumönnum á Vesturbakkanum sem fremja hryðjuverk gegn Ísrael. Slík mál fara sjálfkrafa fyrir herdómstól og herráðsforinginn Avi Bluth undirritaði tilskipun í gær um gildistöku laganna. Samkvæmt ákvæðum laganna, sem samþykkt voru í mars , ber dómstólum að gera dauðarefsingu sjálfgefna niðurstöðu í málum gegn Palestínumönnum sem af ásettu ráði hafa gert mannskæðar árásir af því tagi sem Ísraelsríki flokkar sem hryðjuverk. Undir sérstökum mildandi kringumstæðum mega dómarar kveða upp lífstíðardóm í staðinn. Lögin taka ekki til sams konar glæpa ísraelskra ríkisborgara sem fara fyrir borgaralega dómstóla. Frumvarpið var sérstakt baráttumál þjóðaröryggisráðherrans Itamars Ben-Gvir, sem leiðir stjórnmálaflokk yst á hægri kanti stjórnmálanna. Varnarmálaráðherrann Israel Katz þrýsti mjög á Bluth að staðfesta lögin, sem hann gerði loks í gær, eins og áður sagði. Lagasetningin hefur verið harðlega gagnrýnd , ekki síst fyrir þá mismunun að þau ná aðeins yfir tiltekinn hóp fólks. Nokkur erlend ríki og mannréttindasamtök hafa mótmælt lagasetningunni harðlega og innlend samtök og stjórnmálamenn lögðu gildi þeirra fyrir Hæstarétt sem krefur stjórnvöld viðbragða fyrir 24. maí.