Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dregur hægt úr vindi

Read Full Article →

Enn er frost á Fróni en landsmenn geta þó fagnað því að það dregur hægt úr vindi eftir því sem líður á daginn. Austlendingar eru þó ekki sloppnir því þar bætir í vind og ofankomu í kvöld. Þungfært var á Bjarnarfjarðarhálsi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni klukkan átta. Þá var þæfingsfærð á Þröskuldum en snjóþekja á Dynjandisheiði, Gemlufjallsheiði, Klettshálsi og í Steingrímsfirði. Einnig var þæfingsfærð í Siglufirði, Ólafsfirði og á Víkurskarði. Víða er hálka á vegum. Veðurspáin er svohljóðandi: Hægt minnkandi norðan- og norðaustanátt í dag, yfirleitt á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu eftir hádegi. Dálítil él norðan- og austantil á landinu, en léttir til sunnan heiða. Bætir í vind og ofankomu austanlands í kvöld. Norðlæg átt, þrír til átta, á morgun, en átta til þrettán austanlands. Él um landið norðaustanvert, en þurrt og bjart sunnan- og vestantil. Frost 3 til 13 stig.

Share this article