Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnvöld vísa því á bug að hafa eitrað fyrir Navalní með froskaeitri

  • What: Russian authorities deny poisoning Alexei Navalny with epibatidine, a toxin derived from poison dart frogs.
  • Impact: The denial follows a joint statement from several European governments accusing Russia of the poisoning.
Read Full Article →

Rússnesk stjórnvöld vísa á bug sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórna Breta, Frakka, Þjóðverja, Svía og Hollendinga um að rússnesk stjórnvöld hafi eitrað fyrir stjórnarandstæðingnum Aleksei Navalní með froskaeitri. „Þegar niðurstöður rannsóknanna liggja fyrir og formúlur efnanna verða birtar opinberlega munum við gefa út yfirlýsingu í samræmi við það. Þangað til eru allar slíkar fullyrðingar áróður, sem ætlað er að beina athyglinni frá vandamálum Vesturlanda,“ segir María Zakharova, fjölmiðlafulltrúi rússneska utanríkisráðuneytisins, sem tjáði sig um málið við rússnesku fréttastofuna TASS. Norska ríkisútvarpið greinir svo frá. Á morgun eru tvö ár síðan Navalní lést í fanganýlendu í Norður-Síberíu. Sýni úr líkamsleifum hans voru send til greiningar í tveimur ríkjum. Í þeim fannst eitrið epibatidine sem er unnið úr eiturfroskum. Bresk stjórnvöld sögðu að þau ætluðu að tilkynna Rússa til Efnavopnastofnunar fyrir brot gegn alþjóðlegum sáttmála um efnavopn. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki gefið greinagóðar upplýsingar um dánarorsök Navalnís. Þau segja hann hafa fallið niður á jörðina þegar hann var á göngu utandyra í fangabúðunum í Rússlandi.

Share this article