Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Minnast Navalnýs á dánardegi hans

  • What: People gathered in Moscow to commemorate the second anniversary of the death of Russian opposition leader Alexei Navalny.
  • Impact: The event highlighted the ongoing controversy surrounding his death and the accusations against the Russian government.
Read Full Article →

Tugir manna komu saman við leiði rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnýs í Moskvu í morgun. Tvö ár eru síðan hann lést í fangelsi. Rússnesk stjórnvöld neita því enn að hafa valdið dauða hans. Meðal þeirra sem lögðu leið sína að gröf Navalnýs í morgun voru diplómatar nokkurra vestrænna ríkja, móðir hans og tengdamóðir. Börn hans og ekkja eru í útlegð. Ástvinir rússneska stjórnarandstæðingsins Navalnýs og vestrænir diplómatar voru meðal þeirra sem komu saman við leiði hans í morgun. Tvö ár eru síðan hann lést í fangelsi. Rússnesk stjórnvöld hafna enn ásökunum um að hafa drepið hann. Navalný lést þennan dag fyrir tveimur árum í fangelsi. Þar afplánaði hann 19 ára dóm. Honum hafði verið gefið að sök að leiða öfgasamtök. Hann fór fyrir samtökum sem rannsökuðu spillingu í Rússlandi. Skýringar rússneskra stjórnvalda á dauða Navalnýs eru á þann veg að hann hafi hnigið niður þegar hann var á göngu úti við. Á dögunum sökuðu stjórnvöld fimm ríkja rússnesk stjórnvöld um að hafa banað honum með því að byrla honum eitur úr froskum. Ríkin sögðu þetta niðurstöður rannsókna á sýnum úr líkamsleifum hans. Stjórnvöld í Rússlandi neita þeim ásökunum. Nú síðast í morgun sagði talsmaður þeirra, Dmitry Peskov, að ásakanirnar væru hlutdrægar og órökstuddar.

Share this article