- What: The President of Iceland awarded Karl Gunnarsson for his research on marine life around Iceland.
- Impact: Highlights the importance of marine research and the potential value of seaweed.
200 mílur | Morgunblaðið | 15.2.2026 | 18:30 „Þetta er auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ „Mesta ógnin er hlýnun sjávar og sést t.d. að samdráttur hefur orðið í vexti þörunga í sunnanverðri Evrópu vegna hækkandi hitastigs,“ segir Karl. Morgunblaðið/Eggert Á löngum ferli hefur Karl Gunnarsson unnið mikilvægar og merkilegar rannsóknir á lífríki hafsins umhverfis Ísland, og er það ekki síst framlag hans til rannsókna á botnþörungum sem vakið hefur athygli. Forseti Íslands sæmdi Karl heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á fyrsta degi ársins fyrir ötult framlag hans, en Karl hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun árið 1975 og hafði áður tekið þátt í sjávarlíffræðirannsóknum sem unglingur. Þegar söl björguðu Agli Skallagrímssyni Vísindastörf Karls hafa m.a. snúist um leiðir til að nýta þörunga með margvíslegum hætti, en komið hefur æ betur í ljós hversu mikil verðmæti geta verið fólgin í þessum sjávarlífverum. Augljósasta notagildið felst í að nýta þörunga til matar, en Karl segir elstu heimildir um slíkt að finna í Íslendingasögunum. „Það er talið að strax frá landnámi hafi menn nýtt hér söl til matar, og ekki bara sem fátækramat heldur var þetta verðmæt afurð. Ein gjöfulasta sölvafjara landsins, Saurbæjarfjaran, var t.d. metin til jafns við sæmilega bújörð.“ Næringargildið fer ekki á milli mála og hafa þörungarnir örugglega stórbætt vítamínbúskap forfeðranna. „Ef söl eru borðuð fersk innihalda þau t.d. C-vítamín á við sítrónur og appelsínur og hafa próteinhlutfall sem er sambærilegt við nautakjöt,“ útskýrir Karl. Þörungar eru til margra hluta nytsamlegir. Á myndinni er beltisþari sem nýtist m.a. til manneldis og sem hráefni í snyrtivörur. Ljósmynd/Karl Gunnarsson Ein merkilegasta frásögnin af neyslu þörunga fyrr á öldum birtist í Egils sögu, þegar Egill Skallagrímsson hefur misst báða syni sína og er bugaður af sorg. „Hann leggst í rekkju og ætlar að svelta sig í hel en þá kemur dóttir hans Þorgerður, sem gifst hafði Ólafi pá Höskuldssyni, og leggst hjá föður sínum og lætur Egil halda að hún ætli líka að svelta sig til dauða,“ rekur Karl söguna. „Hún byrjar þá að tyggja söl, og Egill spyr hvað hún sé að tyggja, og svarar hún að sölin muni flýta fyrir dauðanum. Egill fær sér þá líka söl, og síðan gerast feðginin þyrst af sölvaátinu og biðja konu Egils að koma með vatn að drekka. Egill fær hornið, sem hann sýpur af, og þegar hann finnur að það er mjólk í horninu en ekki vatn reiðist hann svo mikið að hann bítur endann af horninu. Þá segir Þorgerður að nú dugi ekki lengur fyrir hann að svelta sig, og betra að hann fari á fætur og yrki kvæði um syni sína. Sem hann gerði og var það Sonatorrek, eitt merkasta ljóð íslenskra bókmennta.“ Möguleiki á frunsulyfi Greinilegt er að Íslendingar borðuðu þörunga í margar aldir og nýttu líka sem eldsneyti en svo virðist að upp úr 1900 hafi nýting þörunga nánast hætt samhliða breyttum lifnaðarháttum „Síðan gerist það ekki fyrr en á undanförnum fjórum áratugum að áhugi vaknar á að nýta þörunga aftur til matar, og til annarra hluta. Í dag er svo komið að meira að segja Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hvetja til aukinnar nýtingar þörunga, enda eru þeir ríkir af efnum sem eru líkamanum holl.“ Hér sést Karl í köfunarbúningnum, enda er sjávarbotninn hans rannsóknarstofa. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir – Hafró Karli telst til að á bilinu 20 til 30 tegundir þörunga í hafinu umhverfis Íslands henti til manneldis, en notagildi þörunganna felst líka í því að t.d. búa til bætiefni fyrir dýrafóður og draga úr þörungunum efni sem nýtt eru í snyrtivörur. „Sú þörungavinnsla sem fer fram á Íslandi í dag er fyrst og fremst fyrir vinnslu hleypi- og eða þykkingarefna en einnig áburðar og fóðurs, en nýir notkunarmöguleikar eru að koma í ljós og t.d. hægt að gera úr þörungunum efni með svipaða eiginleika og bómull, og nýta þannig til vefnaðar.“ Hlýnun sjávar vandamál Á sama tíma og skilningur okkar á mikilvægi og notagildi þörunga er að aukast berast fréttir af slæmum breytingum á þaraskógum víða um heim. „Mesta ógnin er hlýnun sjávar og sést t.d. að samdráttur hefur orðið í vexti þörunga í sunnanverðri Evrópu vegna hækkandi hitastigs. Syðri mörk þaraskóga eru að færast norðar og ákveðnar tegundir að hverfa frá svæðum þar sem þær gátu áður vaxið,“ útskýrir Karl. Ef þörungarnir eiga undir högg að sækja getur það bitnað á öllu lífríkinu og bendir Karl á að fisktegundir lifi í og við þaraskóga og líði fyrir það ef þeir minnki. Hann segir líka að þar sem þörungar séu nýttir verði að gera það með ábyrgum hætti. „Aukin nýting má ekki raska vistferlum og fæðukeðju hafsins. Þetta er auðlind sem þarf að umgangast af virðingu og nýting þarf að vera sjálfbær svo að komandi kynslóðir geti haldið áfram að njóta góðs af.“ Lengri útgáfu greinarinnar má lesa í sérblaði 200 mílna . Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Þröng á þingi á loðnumiðum Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi „Góða loðnuvertíðin“ Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þröng á þingi á loðnumiðum Æfingar aukist með Öldu-appi Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Gámar af fiski strand í Evrópu Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Talsvert af loðnu á miðunum „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Jafnvel verra en að drepa mann Lamaðist af hryllingi við uppgötvunina Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Þröng á þingi á loðnumiðum Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi „Góða loðnuvertíðin“ Þarf að ræða bláfæðu á alþjóðavettvangi Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þröng á þingi á loðnumiðum Æfingar aukist með Öldu-appi Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Gámar af fiski strand í Evrópu Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Talsvert af loðnu á miðunum „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Langar enn að eignast Grænland Lamaðist af hryllingi við uppgötvunina Legurými staðið til boða í mánuði Obama tjáir sig um myndskeiðið í fyrsta sinn Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »