Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2026 | 6:15 Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Þorgerður Katrín sat fyrir svörum á fundi nefndarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir svör Þorgerðar ekki standast nokkra skoðun Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Undanþágur aðallega tímabundnar Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar » Fleiri tengdar fréttir Meðal fyrirvara sem íslensk stjórnvöld settu fyrir inngöngu í Evrópusambandið, ESB, og fram koma í athugasemdum með þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að sambandinu sem samþykkt var á Alþingi 2009, er forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum, fiskveiðiauðlindinni og sjálfbærri nýtingu hennar sem og hlutdeild í deilistofnum. Einnig að Ísland hefði eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi og unnt yrði. Enn fremur að öflugur íslenskur landbúnaður yrði tryggður á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis. Þessir fyrirvarar voru þó aldrei kynntir í aðildarviðræðunum við ESB og látnir liggja á milli hluta. Frétt af mbl.is Segir svör Þorgerðar ekki standast nokkra skoðun Engar líkur á varanlegum undanþágum Þá kemur fram í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar um þingsályktunartillöguna um aðildarumsóknina sem samþykkt var 2009, að í störfum nefndarinnar hafi „ítrekað komið fram að engar líkur séu á því að Ísland geti í aðildarviðræðum við Evrópusambandið búist við varanlegum undanþágum frá þeim meginreglum sem í gildi eru innan Evrópusambandsins og eru þau viðhorf í samræmi við þær niðurstöður sem áður hafa komið fram í skýrslum og greinargerðum sem unnar hafa verið af hálfu íslenskra stjórnvalda á umliðnum misserum og árum“, segir orðrétt í álitinu. Frétt af mbl.is Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar ESB-réttur framar íslenskum Bæði Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður Samfylkingarinnar gengust við því í viðtölum í fjölmiðlum í sl. viku að ESB-rétturinn gengi framar íslenskum lögum, færi svo að Ísland gengi í ESB. Á opnum fundi utanríkismálanefndar sl. föstudag var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þráspurð um hvort ekki væri alveg ljóst að yrði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið myndi Evrópuréttur gilda hér á landi og þau lög sem hér giltu og væru ekki í samræmi við ESB-rétt myndu falla úr gildi. Öll íslensk lög yrðu að vera í samræmi við ESB-réttinn og hvort ráðherrann hygðist halda því leyndu fyrir almenningi. „Að sjálfsögðu er það þannig að ef og þegar við erum komin inn í Evrópusambandið, þá er Evrópurétturinn þannig, eins og hann er samkvæmt aðildarsamningi. Við erum að fara að semja um aðildarsamning,“ sagði Þorgerður Katrín sem samkvæmt framansögðu virtist telja að Evrópureglurnar væru umsemjanlegar. Var hún gagnrýnd fyrir þau ummæli af Guðlaugi Þór Þórðarsyni alþingismanni Sjálfstæðisflokksins sem benti á að samkvæmt orðum ráðherrans virtist hún telja að Ísland gæti breytt ESB-réttinum í aðildarsamningi. Frétt af mbl.is „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Viðmið“ Þegar Þorgerður Katrín var síðan spurð hvort ofangreindum fyrirvörum eða skilyrðum Íslands yrði haldið fram í komandi aðildarviðræðum ef af þeim yrði, enda hlyti svo að vera fyrst ríkisstjórnin teldi að umsóknin frá 2009 væri enn í gildi, sagði hún í svari sínu að ekki væri „óeðlilegt“ að tekið yrði tillit til þeirra, sem hún vildi reyndar kalla „viðmið“, eins og greint var frá í Morgunblaðinu sl. laugardag. Frétt af mbl.is „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir svör Þorgerðar ekki standast nokkra skoðun Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Undanþágur aðallega tímabundnar Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Öfundsvert útsýni við Gullsmára Ekki endirinn sem Birkir hafði vonast eftir „Fyrir 25 árum var þetta óhugsandi“ Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásin undirstrikar þörfina: „Við þurfum danssalinn“ Minntust Giuffre skömmu fyrir komu Bretakonungs Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Öfundsvert útsýni við Gullsmára Ekki endirinn sem Birkir hafði vonast eftir „Fyrir 25 árum var þetta óhugsandi“ Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Maðurinn fannst látinn við Háafoss Ætlaði sér að ráðast á forsetann Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils

Share this article