Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kvarta við RÚV yfir meintum áróðri

  • What: Controversy over documentary about fishing industry
  • Impact: Public debate about transparency in media coverage of environmental issues
Read Full Article →

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa sent útvarpsstjóra og stjórn RÚV erindi vegna fyrirhugaðrar sýningar myndarinnar Árnar þagna á sunnudaginn. Samtökin fara þess á leit að í kynningu á myndinni og við upphaf sýningar komi skýrt fram hverjir standi að framleiðslu hennar og fjármögnun, „þar á meðal að myndin sé framleidd af samtökum sem hafa yfirlýsta stefnu og hagsmuni í umræðu um fiskeldi á Íslandi“. Þess má geta að Alþingi er nú með til umfjöllunar frumvarp atvinnuvegaráðherra um ný heildarlög um lagareldi. SFS benda á að samkvæmt opinberu kynningarefni og fjölmiðlaumfjöllun hafi myndin verið framleidd og fjármögnuð af Íslenska náttúruverndarsjóðnum (Icelandic Wildlife Fund – IWF) og norsku samtökunum Redd Villaksen. Handrit hafi verið unnið af leikstjóra myndarinnar ásamt Jóni Kaldal, sem hefur komið fram sem talsmaður IWF og tekið virkan þátt í opinberri baráttu gegn fiskeldi á Íslandi. SFS kalla eftir því að Ríkisútvarpið tryggi að umfjöllun um fiskeldi í dagskrá þess uppfylli kröfur um jafnræði og fjölbreytni sjónarmiða, m.a. með því að tryggja sambærilegt rými fyrir umfjöllun um sjónarmið þeirra samfélaga, fyrirtækja, sérfræðinga og atvinnugreina sem tengjast fiskeldi og starfsemi þess. Þá fara þau þess á leit að „sérstaklega verði hugað að því að áhorfendur geti með skýrum hætti greint á milli ritstýrðs fréttaefnis annars vegar og hins vegar efnis sem unnið er af hagsmunaaðilum í tengslum við pólitíska og samfélagslega hagsmunabaráttu“. Í bréfinu segir að það liggi fyrir að myndinni hafi verið dreift með skipulögðum hætti í aðdraganda alþingiskosninga árið 2024, ásamt pallborðsumræðum víða um land, í þeim tilgangi að hafa áhrif á opinbera stefnumótun og stjórnmálaumræðu um fiskeldi. „Efnið er framleitt af aðilum með yfirlýsta hagsmuni og skýra afstöðu til þess samfélagsmáls sem umfjöllunin beinist að.“

Share this article