Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Iðnver og Laxey semja um hreinsunarlausn

  • What: Iðnver and Laxey sign agreement for ECA-water technology
  • Impact: Environmental and hygiene benefits in various industries
Read Full Article →

Iðnver ehf. og landeldisfyrirtækið Laxey hafa undirritað samning þess efnis að Laxey kaupir ECA-rafal af Iðnver. „Um er að ræða byltingarkennda lausn fyrir sótthreinsun og þrif hjá landeldisfyrirtækinu í Vestmannaeyjum. Samningurinn er mikilvægur áfangi í samstarfi fyrirtækjanna sem hafa það að markmiði að auka nýsköpun og bæta umhverfisvernd í íslenskum sjávarútvegs- og matvælaiðnaði,“ segir í fréttatilkynningu. ECA-vatn (Electrolyzed Water) er umhverfisvæn tækni þar sem sjór og rafmagn eru nýtt til að framleiða öfluga, náttúrulega hreinsilausn með rafgreiningu. Tæknin býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og hentar vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um hreinlæti, öryggi og gæða. Notkun á ECA-vatni er sögð áhrifarík aðferð til að eyða bakteríum, veirum og öðrum örverum, án þess að nota til þess skaðleg eða hættuleg efni. Lausnin henti vel í sjávarútvegi, matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu og ýmsum iðnaðarferlum, en einnig í sundlaugum og annars staðar þar sem mikilvægt er að tryggja hreint og öruggt umhverfi. „ECA- tæknin styður auk þess við sjálfbærni og umhverfisvernd með því að takmarka þörf fyrir hefðbundin skaðleg hreinsiefni og minni notkun þeirra dregur úr mengun umhverfisins. Jafnframt getur þessi nýja tækni stuðlað að bættum vatnsgæðum við ýmsa framleiðsluferla þar sem hreinleiki skiptir sköpum.“ Stuðlar að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði Landeldisfyrirtækið Laxey hefur skuldbundið sig til að nota lausnir sem stuðla að verndun umhverfisins. Samstarf Iðnvers, Laxeyjar felur í sér að deila þekkingu og reynslu á þessu nýstárlega sviði, sem mun stuðla að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði. Með því að sameina krafta sína vonast fyrirtækin til að stuðla að aukinni notkun umhverfisvænna lausna og skapa þannig verðmæti fyrir fyrirtækin og samfélagið með betri grænni framtíð.

Share this article