Laxey hefur gert samning við AKVA Group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í Vestmannaeyjum (Seiðastöð II). Með samningnum er stigið næsta skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Samstarf félaganna nær aftur til júní 2022 þegar samið var um fyrstu RAS-seiðastöð Laxeyjar. Sú stöð er nú í fullum rekstri og hefur staðið undir væntingum bæði hvað varðar afköst og gæði. Starfmenn Laxeyjar og Akva Group við undirskriftina. Framleiðslan hefur verið stöðug og hefur hún skilað fimm hópum af hágæða seiðum sem styðja við áframeldið og framleiðslu á landi. Samstarfið hefur einnig þróast inn í áframeldið, fyrst í Áfanga I og síðar í Áfanga II, þar sem AKVA Group hefur tekið aukinn þátt í afhendingu og uppsetningu kerfa. Undirbúningur næsta vaxtarskrefs Fyrsti áfangi nýju seiðastöðvarinnar er hannaður með um 5 milljóna seiða ársframleiðslu á 100 gramma seiðum, dreift á þrjú kerfi. Með frekari uppbyggingu í áföngum tvö og þrjú er gert ráð fyrir að framleiðslugeta aukist í 10 milljónir og að lokum allt að 15 milljónir seiða á ári. Hönnunin byggir á sömu RAS tækni og hefur reynst vel í Seiðastöð I, þar sem rekstur hefur verið stöðugur og árangur góður. Sú nálgun, ásamt reynslu af samstarfinu, skapar betri fyrirsjáanleika í uppbyggingunni og dregur úr framkvæmdaráhættu á næstu stigum. Þessi áfangi er liður í áframhaldandi þróun Laxeyjar á landeldi í Vestmannaeyjum, með áherslu á stöðuga framleiðslu og ábyrga nýtingu auðlinda. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Seiðastöð II hefjist í sumar, háð farsælli fjármögnun, og að starfsemi hefjist á fjórða ársfjórðungi 2027.