Um hundrað rússneskir hermenn eru sagðir hafa fallið eða særst í loftárás úkraínskra sérsveitarmanna SBU á höfuðstöðvar rússnesku leyniþjónustunnar FSB í Kherson-héraði í Úkraínu, sem er að hluta til hernumið af Rússum. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti greindi frá árásinni í færslu á samfélagsmiðlinum Telegram í gær en greindi þó ekki frá því hvenær árásin átti sér stað. Mikil átök hafa verið milli Rússa og Úkraínumanna í Kherson-héraði og samnefndri höfuðborg héraðsins, allt frá upphafi innrásarinnar í febrúar 2022. Rússar réðu stórum hluta héraðsins fyrst um sinn en Úkraínuher náði aftur borginni í nóvember sama ár. Fram kemur í frétt Kyiv Independent að úkraínski herinn hafi einnig gert drónaárásir á byggingu FSB á Krímskaga í byrjun mánaðarins.
This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability or cyber threat; it reports that Ukrainian SBU special forces conducted an airstrike and drone attacks on Russian FSB headquarters in occupied Kherson and Crimea, causing casualties. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or IT workarounds are mentioned in the source material.