Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Árásarmaðurinn hafði áður reynt að fara inn í Hvíta húsið

This article describes a physical security incident involving an armed assault on the White House perimeter, not a software vulnerability. The attack vector was a shooting by an individual who had previously attempted to breach the White House in July of last year and had a documented history of mental illness. The summary does not contain information pertaining to CVSS scores, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Einn særðist og byssumaður er látinn eftir skotárás við Hvíta húsið í gærkvöld. Árásarmaðurinn skaut á leyniþjónustumann sem skaut til baka á manninn. Árásarmaðurinn lést síðar af áverkum sínum á spítala. Einn vegfarandi særðist í árásinni en ekki er ljóst hver skaut hann. Engir leyniþjónustumenn særðust í árásinni. Skotárásin var gerð um klukkan sex að staðartíma. Donald Trump Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar byssumaðurinn réðst til atlögu. Fjölmennur hópur fjölmiðlafólks var við störf á norðurhlið hússins þegar skothvellirnir heyrðust. Kanadískur ferðamaður sagði við fréttaveituna AFP að hann hefði heyrt um 20-25 skothvelli. Hann hélt fyrst að þetta væru flugeldar og síðan sá hann að fólk í kringum hann var á hlaupum. Mikill viðbúnaður Alríkislögreglunnar og leyniþjónustunnar var á vettvangi eftir atvikið. Byssumaðurinn hefur verið nafngreindur en hann hét Nasire Best og var 21 árs. CBS News segja að hann hafi áður reynt að fara inn í Hvíta húsið í júlí á síðasta ári. Hann var handtekinn og sendur á geðdeild vegna andlegra veikinda. Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social að byssumaðurinn hefði átt sögu um ofbeldi og hefði mögulega verið heltekinn af Hvíta húsinu. Hann þakkaði lögregluyfirvöldum fyrir skjót og góð viðbrögð. Þrisvar sinnum hafa verið gerðar tilraunir til að skjóta Bandaríkjaforseta, síðast á hátíðarkvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington þann 25. apríl.

Share this article