Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Maðurinn fundinn

  • What: Person found by police
  • Impact: No security or technical impact
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Mað­ur­inn fund­inn Sigrún Björk Hjartardóttir Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gærkvöld er fundinn. Í tilkynningu lögreglu sem send var á fjölmiðla nú í morgun var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar. Lögregla þakkar veitta aðstoð. Fyrir 31 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Jarð­skjálfti að stærð­inni 3,5 Brynja Dögg Friðriksdóttir Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni mældist 3,5. Veðurstofa Íslands / Náttúruvárvakt Jarðskjálfti að stærðinni 3,5 varð kl. 05:56 í morgun. Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg, tæplega 10 km vestur af Reykjanestá, upp úr kl. 21:00 í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands hafa yfir 120 skjálftar mælst síðan. Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að sjálftarnir hafi fundist í byggð. Ekki mælist órói á svæðinu og GNSS-stöðvar á svæðinu sýna ekki markverðar breytingar í bakgrunni. Síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári og vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga, segir í upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Árás­ar­mað­ur­inn hafði áður reynt að fara inn í Hvíta húsið Árásarmaðurinn sem skaut leyniþjónustumann við Hvíta húsið í gærkvöld reyndi að fara í Hvíta húsið í júlí. Hann er talinn hafa verið andlega veikur. Bandaríkjaforseti þakkaði lögregluyfirvöldum fyrir skjót og góð viðbrögð. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Mikil mót­mæli í Bel­grad Tugir þúsunda komu saman í gær til að kalla eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu. Forsætisráðherrann hefur sagt að þær verði í haust. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Fjörð­ur vann Gull­pálm­ann Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður vann Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöld. Kvikmyndin Minotaure hlaut Grand-Prix verðlaun hátíðarinnar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Einn drep­inn og 20 særðir eftir miklar árásir á Kyiv Rússar hafa gert miklar árásir á Kyiv í nótt með flugskeytum og drónum. Almennum borgurum hefur verið ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Skot­hvell­ir við Hvíta húsið - byssu­mað­ur­inn látinn og einn særður Tugir skothvella heyrðust við Hvíta húsið í kvöld. Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar skothvellirnir heyrðust. Mikill viðbúnaður var á vettvangi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Skólahreysti Grunn­skóli Húna­þings vestra sigr­aði í Skóla­hreysti Grunnskóli Húnaþings vestra stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni að Varmá í kvöld. Laugalækjarskóli endaði í öðru sæti og Víðistaðaskóli hafnaði í því þriðja. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Dul­ar­full fækkun brodd­galta Broddgöltum í Svíþjóð hefur fækkað hratt og enginn veit hvers vegna. 23. maí 2026 kl. 20:05MENNING OG DÆGURMÁL Menning Tölvu­leik­ir og list renna saman í Bíó Para­dís Leikjahátíðin Isle of Games fer fram í Bíó Paradís þessa hvítasunnuhelgi. Þar má finna blöndu af tölvuleikjum, list, sýndarveruleika og tónlist. 23. maí 2026 kl. 19:55INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sjö flug­ferð­um aflýst á einum sól­a­hring Icelandair hefur þurft að aflýsa sjö flugferðum á einum sólarhring, þar af fjórum vegna manneklu. Þrjár flugferðanna voru til Evrópu og fjórar til Bandaríkjanna. Tvær flugferðir hafa bæst við síðan fyrr í dag. 23. maí 2026 kl. 19:49ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segja að þokast hafi í við­ræð­um Stjórnvöld í Pakistan telja að þokast hafi í viðræðum Bandaríkjanna og Írans. Hótanir ganga þó enn á milli ríkjanna. 23. maí 2026 kl. 18:44ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þrjú ný eb­ólu­smit í Úganda Ebólufaraldur geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda. Yfirmaður sóttvarnastofnunar Afríku segir tíu ríki vera í hættu á að veiran smitist þangað. 23. maí 2026 kl. 17:56ÍÞRÓTTIR Fótbolti P-in tvö tryggðu Barc­el­ona sigur í Meist­ara­deild­inni Barcelona vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 4-0 sigur gegn Lyon í úrslitaleiknum. Ewa Pajor og Salma Paralluelo skoruðu báðar tvö mörk. Þetta er í fjórða skiptið sem Barcelona verður Evrópumeistari. 23. maí 2026 kl. 17:19INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Form­leg­ar við­ræð­ur hafnar í Hafn­ar­firði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa hafið formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Stefnt er á að þeim verði lokið á þriðjudag. 23. maí 2026 kl. 16:51INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ekkert grín að grein­ast með berkla Það er ekkert grín að greinast með berkla, segir hjúkrunarfræðingur sem smitaðist við störf sín á bráðamóttöku Landspítala og lauk meðferð í gær. Hann segir að ráðamenn verði að fara að hlusta á starfsfólk deildarinnar. 23. maí 2026 kl. 16:48INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mynda meiri­hluta í Fjarða­byggð Sjálfstæðisflokkur og Framsókn verða áfram í meirihluta í Fjarðabyggð. Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri en hún hefur gegnt starfinu frá árinu 2023. 23. maí 2026 kl. 16:18INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Tafir á umferð vegna þriggja bíla árekst­urs Ragnhildur Helgadóttir RÚV / Ragnar Visage Umferðartafir mynduðust á Reykjanesbraut við Breiðholt eftir þriggja bíla árekstur sem varð um þrjúleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var áreksturinn minniháttar og enginn fluttur á sjúkrahús. 23. maí 2026 kl. 16:13INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Segir æru­meið­andi og rangar full­yrð­ing­ar í dómnum „Í rökstuðningi héraðsdóms er alvarlega snúið út úr málavöxtum með þeim hætti að sú atvikalýsing er í engu samræmi við það sem raunverulega gerðist,“ skrifar Tómas Guðbjartsson læknir. Hann segir furðu sæta að hann hafi ekki verið látinn bera vitni. 23. maí 2026 kl. 15:55MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Opnuðu flott­asta næt­ur­klúbb átt­unn­ar á Rás 2 árið 2026 Það var heldur betur stemning í Partýverkunum á dögunum þegar Gleymdar Perlur áttunnar hópurinn opnaði flottasta næturklúbb níunda áratugarins á Rás 2, í eitt 80's klúbbakvöld. Doddi, DJ Johnny og Biggi Veira úr GusGus léku fyrir dansi. 23. maí 2026 kl. 15:52ÍÞRÓTTIR Skólahreysti Ís­lands­meist­arar í hreystig­reip mætast: Hvor nær að hanga lengur? Einvígið í hreystigreip nær hámarki í úrslitum Skólahreystis í kvöld. Saga Björgvinsdóttir og Dagbjört Lilja Oddsdóttir hafa skipst á að slá Íslandsmetið og allar líkur eru á að metið verði slegið enn einu sinni í kvöld. 23. maí 2026 kl. 14:54INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Óveru­leg­ar fjár­fest­ing­ar“ í ótengd­um rekstri „Þrátt fyrir að þetta kunni að hljóma sem stórar tölur þá í samhengi hluta þá eru þær það svo sannarlega ekki,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hagfræðistofnun HÍ birti í gær skýrslu um eignarhald stærstu útgerðanna. 23. maí 2026 kl. 14:34INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Telja nauð­syn­legt að fleiri komi að þróun náms­gagna Bókaútgefendur telja nauðsynlegt að fleiri hafi aðkomu að þróun námsgagna og að mið sé tekið af fyrirkomulagi nágrannaríkja. Niðurstaða skýrslu Þróunarsjóðs námsgagna sé skýr. Mikill skortur sé á námsefni og þörf sé á breytingum. 23. maí 2026 kl. 14:32ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Smokk­ar, ferskj­ur og egg­ald­in vegna HM Toronto-borg mun útdeila tugþúsundum smokka fyrir áhorfendur sem munu flykkjast til borgarinnar vegna heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Alls er búist við 300.000 manns og fór borgin frumlega leið í hönnun. 23. maí 2026 kl. 14:07INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skýrsl­an sýni ekki heild­ar­mynd­ina Dagur B. Eggertsson þingmaður segir nýja skýrslu um eignarhald útgerðanna varpa ljósi á þróun sem hafi átt sér stað mjög hratt. „Það er strax ljóst að þetta er alls ekki heildarmynd,“ segir hann. 23. maí 2026 kl. 13:41ERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Sam­runi Warner Bros. og Para­m­ount óum­flýj­an­leg­ur Lítið annað hefur verið talað um í Hollywood síðustu mánuði en samruna Warner Bros. Discovery og Paramount Skydance, sem vann yfirtökustríð við Netflix í febrúar. Heimskviður kynntu sér samrunann, áhrif hans og sögu kvikmyndaveranna. 23. maí 2026 kl. 13:02INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Aflýsa fimm flugum í dag – tveim­ur vegna mann­eklu Icelandair hefur þurft að aflýsa fimm flugum í dag, tveimur vegna áhafnarskorts. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir þetta ekki tengjast neins konar verkfallsaðgerðum. 23. maí 2026 kl. 13:01MENNING OG DÆGURMÁL Pistill Tví­ær­ing­ur­inn af­hjúp­ar saum­ana í sam­fé­lög­um Vangaveltur um heimsvaldastefnu, tortímingu jarðar og menningarheima eru til umfjöllunar á Feneyjatvíæringnum en afhjúpunin á sér ekki stað með öskri, segir Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir Víðsjár, heldur með því sem áður var ýtt til hliðar. 23. maí 2026 kl. 12:53INNLENDAR FRÉTTIR HM í fótbolta 2026 Fleiri Ís­lend­ing­ar fara þegar stór­mót­in eru haldin nær Sérferðir héðan á íþróttastórmót eru frekar bundin því að Ísland sé að spila. Ekki er búist við mörgum Íslendingum á HM í fótbolta í sumar, ekki síst vegna fjarlægðar og kostnaðar. 23. maí 2026 kl. 12:39ÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Úr­slita­leik­ur Meist­ara­deild­ar í fót­bolta Í dag mætast Barcelona og Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar kvenna í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og er sýndur á RÚV. 23. maí 2026 kl. 12:35ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Frede­rik­sen fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á ný Dagný Hulda Erlendsdóttir Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku og starfandi forsætisráðherra, fékk rétt í þessu stjórnarmyndunarumboð á ný. Leiðtogar flokkanna á danska þinginu hafa í morgun komið á fund Friðriks konungs, einn af öðrum, og nú hefst þriðja lota stjórnarmyndunarviðræðna. Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hafði umboðið þar til upp úr slitnaði í gær. Þingkosningar voru 24. mars og aldrei áður hefur tekið svo langan tíma í Danmörku að mynda stjórn. Frederiksen heitir því að hafa hraðar hendur við stjórn

Share this article