Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ís­lenskur tölvu­markaður gæti farið í „frönsku leiðina“

  • What: Icelandic IT market may follow French regulations on refurbished PCs
  • Impact: Public institutions and companies may need to adopt more sustainable IT procurement practices
Read Full Article →

Landslagið í upplýsingatækni á næstu 12 mánuðum er að breytast hraðar en mörg fyrirtæki átta sig á að sögn Gísla Þorsteinssonar forstöðumanns hjá OK. Hann segir að spurningin sé ekki lengur hvort endurnýttur (e. refurbished) PC-búnaður verði hluti af innkaupastefnu fyrirtækja og stofnana, heldur hversu hratt sá markaður muni springa út. „Frönsk stjórnvöld hafa dregið vagninn með löggjöf, sem kallast AGEC lögin, sem skyldar opinberar stofnanir til að tryggja að a.m.k. 20% af innkeyptum tölvubúnaði sé endurnýttur eða lagfærður. Á næstu 12 mánuðum megum við búast við því að slík hugsun smiti út frá sér af krafti um Evrópu,“ segir Gísli. „Með tilkomu reglugerða eins og CSRD (Corporate Sustainability Reporting Directive), þurfa bæði stór fyrirtæki og opinberir aðilar að sýna fram á raunverulegan, mælanlegan árangur í minnkun á kolefnisfótspori. Að kaupa hágæða, vottuð tæki sem þegar eru í hringrásinni er fljótlegasta leiðin til fyrir græna bókhaldið.“ Ekki bara græna samviskan Hann segir að það sé ekki bara græna samviskan sem stýri ferðinni heldur séu fjármálastjórar líka að vakna. „Að velja vottuð tæki frá stórum framleiðendum, eins og HP sem býður HP Certified Refurbished, þar sem búnaðurinn kemur með fullri ábyrgð og lítur út eins og nýr getur lækkað innkaupakostnað all verulega. Í stórum innkaupum telur slíkt afar hratt.” Gísli nefnir að íslensk fyrirtæki og ríkisstofnanir hafi lengi horft til Norðurlandanna, sem eru til fyrirmyndar í sjálfbærni. „Við megum búast við því að á næstu 12 mánuðum muni útboðsskilmálar hér á landi – sérstaklega hjá hinu opinbera og stærri fjármálastofnunum – byrja að innihalda skýrar kröfur um hlutfall endurnýtts búnaðar, mögulega eins og í Frakklandi. Tæknin og gæðin á endurnýttum B2B tölvubúnaði (commercial grade) eru í dag það mikil að notandinn finnur engan mun á frammistöðu. Mýtan um að „notað sé lélegt“ er endanlega dauð,” segir hann.

Share this article