- What: Aflvéla reports heavy burden from regulatory scrutiny
- Impact: Agricultural equipment sales restricted due to financial regulations
Viðskipti | Morgunblaðið | 26.5.2026 | 12:45 Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Friðrik Ingi afskráði fyrirtækið sem lánamiðlara og hætti að veita þá þjónustu, til þess að komast undan þungbæru eftirliti Seðlabankans. mbl.is/Eyþór Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Þetta er búið að vera gríðarlega þungbært, bæði fyrir okkur og viðskiptavini okkar. Við höfum selt fjölda landbúnaðartækja til bænda og það er mjög íþyngjandi gullhúðun sem þarna er í gangi,“ segir Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Aflvéla, en fyrirtækið selur m.a. margvísleg landbúnaðartæki til bænda. „Við megum hreinlega ekki selja dráttarvél til bænda nema þeir skrifi undir peningaþvættisyfirlýsingar. Við getum ekki selt nein tæki og ekki einu sinni varahluti ef verð þeirra fer yfir jafngildi 15.000 evra ef greitt er í gegnum banka með millifærslu af reikningi, en 10.000 evra ef greitt er með peningum. Í þessum geira eru menn að kaupa dýr tæki og jafnvel dýra varahluti og við erum í stórhættu ef við látum þá ekki skrifa undir þessa pappíra þar sem þeir lýsa sig saklausa af peningaþvætti,“ segir Friðrik Ingi. Hann segir að í tilviki bænda sé algerlega augljóst hvar peningarnir verða til og hvert þeir fara. Hann segir að Aflvélar hafi verið skráðar sem lánamiðlari, en ástæða þess sé sú að fyrirtækið hafi aðstoðað viðskiptavini sína, einkum bændur, við að fá lán hjá fjármögnunarfyrirtækjum. Þjónustan hafi gengið vel og hratt fyrir sig og sparað tíma og vinnu. Gáfust upp og afskráðu sig En þar sem fyrirtækið hafi haft milligöngu um lánafyrirgreiðslu til viðskiptavina sinna, falli það undir lánamiðlara og þurfi því að lúta eftirliti Seðlabankans og Skattsins. „Það voru endalaus bréfaskipti við Seðlabankann út af þessu og allt önnur framfylgd á lögunum en hjá Skattinum, þannig að það voru tveir aðilar að framfylgja lögunum, en hvor á sinn háttinn. Þetta var mjög þungt fyrir okkur og endaði með því að við afskráðum okkur sem lánamiðlara, hættum þeirri þjónustu og heyrum því nú aðeins undir Skattinn,“ segir Friðrik Ingi. Hann segist aðspurður ekki hafa orðið fyrir því að Skatturinn hafi lagt stjórnvaldssekt á fyrirtækið, en kveðst þekkja allmörg dæmi þess að bílaumboð hafi orðið fyrir því að á þau hafi verið lagðar milljónasektir. Friðrik Ingi segist búa erlendis jöfnum höndum og kveðst hafa rætt við allmarga bílasala, bátasala og fleiri til að forvitnast um hvaða reglum þeir þyrftu að lúta við sölu á sínum varningi og í ljós hefði komið að þær væru engar. „Ef peningarnir eru millifærðir úr banka þá er allt uppi á borðum og þó menn komi með háar fjárhæðir í peningum er ekkert gert, nema þeir sjái eitthvað athugavert, þá láta þeir vita af því. Þetta er einhver alger gullhúðun hér á Íslandi í þessum málum og það mætti alveg kalla þetta bullhúðun,“ segir Friðrik Ingi. Víðtæk skilgreining Í bréfi sem fern samtök í atvinnulífinu sendu dómsmálaráðherra nýverið kemur m.a. fram að samtökin hafi fregnað að eftirlitssvið Seðlabanka Íslands hafi óskað upplýsinga frá skráðum lánamiðlurum um hvort og hvernig þeir uppfylli skyldur sínar skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Skilgreiningu á hugtakinu lánamiðlari segja þau svo víðtæka að hún nái m.a. til bifreiðaumboða, bifreiðasala, vélasala og margra annarra söluaðila sem hafi tölvutengingu við kerfi fyrirtækja sem annast fjármögnunarleigu, aðstoði kaupendur við gerð lánaumsókna, en samþykki þó ekki lánveitingar og sýsli ekki að neinu leyti með fjármuni sem fari á milli lánveitenda og kaupenda. Þótt fjármögnunarfyrirtækin sjálf teljist lánveitendur í þessu samhengi, og því tilkynningarskyld, virtist staðan vera sú að lánamiðlurum sé ætlað að endurtaka sömu aðgerðir og lánveitendurnir sjálfir eigi að framkvæma. „Samtökunum þykir sýnt að allt of langt hafi verið gengið með því að fella tilkynningarskyldu á herðar framangreindra aðila. Henni fylgir mikill kostnaður sem ratar út í verðlag auk þess sem henni fylgir mikið umstang, bæði fyrir fyrirtækin og viðskiptavini þeirra,“ segir í bréfinu til ráðherrans. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarstjórnmál í meirihlutaviðræðum Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Fleira áhugavert Vona að þau hafi haft góð áhrif 80 ára met féll: „Leið eins og ég væri í Taílandi“ Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Sérlega harður dómur: „Verður ekki okkar ákvörðun“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Ný stjórn FKA Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Ný stjórn FKA Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Pistlar » Sigurður Már Jónsson Menningarstjórnmál í meirihlutaviðræðum Sigurður Már Jónsson Uppgjörið við þrælahaldið, hvað er satt og rétt? Fleira áhugavert Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Óveruleg fjárfesting í stóra samhengi hlutanna Sérlega harður dómur: „Verður ekki okkar ákvörðun“ „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Ný stjórn FKA Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Atvinnulífið varar við auknum regluþunga Samkeppniseftirlitið gerir ekki athugasemdir Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Samningur um heildstæða borþjónustu í Karíbahafi Ný stjórn FKA Brynja Rún bætist við eigendahóp Árnason Faktor Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Alvarleg staða á íbúðamarkaði Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Aðeins einn aðili hefur ekki skilað lækkun til neytenda Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“